Katalónska flugfélagið Spanair hætti fyrirvaralaust allri starfsemi sinni á föstudagskvöld með þeim afleiðingum að 22 þúsund farþegar flugfélagsins eru í limbói víða um veröld.
Tilkynning Spanair kom í kjölfar þess að ekki tókust samningar um kaup flugfélagsins Qatar Airways á Spanair sem er og hefur verið óopinber ríkisflugfélag Katalóníu og var um skeið alfarið rekið fyrir fjármagn frá því fylki. Var hugmyndin að auka ferðamannastraum til Katalóníu og gera El Prat flugvöllinn að miðstöð flugs á Spáni.
Spanair hefur lengi verið rekið með tapi en aldrei eins og í kjölfar flugslyssins hræðilega á Barajas flugvelli í Madríd árið 2008 þegar vél Spanair fórst í flugtaki og 150 farþegar létust.
Spænsk lög kveða á um að ríkinu beri að endurgreiða farþegum flugfélaga sem óska eftir gjaldþrotaskiptum en það hafa forráðamenn Spanair ekki gert enn og hefur valdið því að farþegar verða að gera sér að góðu að bíða og kannski mánuðir áður en fólk fær peningana sína á ný.
Yfir tvö þúsund manns starfa hjá flugfélaginu að megninu til í Katalóníu.






