Tíðindi

Misvísandi auglýsing Sumarferða

  28/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan Sumarferðir auglýsir í blöðum dagsins svokallaðan Sólarhring sem vísa á til þess að í einn sólarhring geta áhugasamir keypt ferðir þeirra á betra verði en annars. Nema vafi leikur á hvaða sólarhring nákvæmlega er verið að vísa til.

Eins og sést á meðfylgjandi mynd stendur í meginmáli auglýsingarinnar að Sólarhringur Sumarferða hefjist á mánudaginn klukkan tólf á hádegi. Sem er gott og blessað en í hliðardálki sömu auglýsingar kemur fram að Sólarhringurinn hefjist stundvíslega á hádegi í dag laugardaginn 28. janúar.

Ekki er að sjá á vef Sumarferða hvor dagsetningin er í gildi og reyndar ekkert þar að finna um væntanlegt tilboð þegar þetta er skrifað.

Vafalítið er hægt að krefjast þess að njóta bestu mögulegu kjara með vísun í að vafi lék á dagsetningu tilboðsins sé eftir því leitað en þó kemur ekki fram í auglýsingunni hversu mikill afsláttur er veittur af uppgefnu verði á sólarlandaferðum ferðaskrifstofunnar.

Einungis vísað til þess að ódýrustu sætin bókast fyrst og því gildir fyrstir koma, fyrstir fá.

UPPFÆRT kl. 12:15

Á vef Sumarferða er nú komin auglýsing þess efnis að Sólarhringurinn hefjist eftir 1 dag eins og þar stendur.

Ritstjórn Fararheill er engu nær. Hefst þá tilboðið í hádeginu á sunnudeginum?