Kristján nokkur Möller er sá þingmaður sem barðist hvað mest fyrir að Vaðlaheiðargöng yrðu að veruleika og sagði af og frá að göngin atarna myndu kosta meira en lagt var upp með. Nú er sonur Kristjáns allt í einu „sérfræðingur” um flugmál.

Sonur Kristjáns Möller farinn að vinna fyrir Goldman Sachs og þykir móðins hjá Mogganum. Mynd Arion banki

Vaðlaheiðargöng fóru AÐEINS ÁTTA MILLJARÐA fram úr upphaflegri áætlun. Sömu áætlun og Kristján Möller, Samfylkingu, sagði alls ómögulegt að farið yrði fram úr og varð reiður þegar efasemdarmenn gáfu annað í skyn á sínum tíma.

Nú stígur fram þrítugur sonur kappans í nafni Goldman Sachs/Arion banka, og þykist hafa vit á flugmálum að því er fram kemur hér hjá Mogganum.  Þar segist Elvar Ingi Möller verða fyrir miklum vonbrigðum með að Icelandair felli niður nokkrar flugferðir vegna kyrrsetningar Boeing Max 8 véla flugfélagsins samkvæmt fregn Morgunblaðsins.

Hmmm.

Möller þessi er með tæpa milljón krónur í mánaðarlaun. Nema kauði eigi sjálfur hlutabréf í Icelandair er aldeilis fráleitt að hann sé með böggum Hildar vegna þess að Icelandair hefur orðið að draga úr framboði vegna megaklúðurs hins bandaríska Boeing.

Kauði er heldur ekki mikið meiri fræðingur en pabbinn því það hefur legið í augum uppi fyrir alla aðra en dópista á Litla-Hrauni að Icelandair, eins og önnur flugfélög sem brúka Boeing Max-8 vélar, þyrftu að draga saman segl með tilliti til þess að eiga mjög vafasamar kyrrsettar rellur á lager.

Kannski óvitlaust fyrir Moggann að fara að ræða við Jón og Gunnu í Austurstrætinu. Þau sennilega meiri „fræðingar” en Elvar Ingi Möller…