Réttur mánuður síðan allar Max-8 vélar flugvélaframleiðandans Boeing voru kyrrsettar hvarvetna í veröldinni. Fyrirtækið unnið dag og nótt að því að bjarga því sem bjargað verður eins og eðlilegt er. En framtíð Max-8 er að líkindum ráðin.

737 Max vél Boeing. Fáir vita að þrátt fyrir flottar uppfærslur eru Max-vélar Boeing byggðar á nákvæmlega sama flugvélaskrokki og fór fyrst í loftið árið 1967.

Tvö alvarleg flugslys glænýrra Max-8 véla á tæplega sex mánaða tímabili er æði góð ástæða til kyrrsetningar og síðan hefur komið í ljós að í ástæða brotlendinga beggja véla má rekja til tölvubúnaðar sem tók stjórnina af flugmönnunum þegar síst skyldi. Tölvubúnaður sem brást við röngum upplýsingum frá tölvustýrðnum nemum.

Fræðingar Boeing hafa enn ekki klárað þá uppfærslu sem þeir segja að geri allt gott en fyrirtækið þó viðurkennt að eiga sök á máli. Fyrir vikið hrannast upp lögsóknir á hendur Boeing; bæði frá skyldmennum þeirra sem létust í slysunum tveimur en líka frá fjárfestum í Boeing. Bandarísk lög kveða nefninlega á um að hluthafar geti lögsótt fyrirtæki sem með einum eða öðrum eru talin hafa sneitt hjá lögum og reglum.

Þá eru ótalin þau fjölmörgu flugfélög sem eiga Max-8 vélar sem nú safna ryki og hafa kostað flugfélögin bæði tíma og peninga. Fráleitt er annað en að Boeing verði með einhverju móti að koma til móts við stórtap þeirra flugfélaga.

Boeing varla yfir um

Allt ofangreint gæti kostað Boeing tugbilljarða króna í skaðabætur ef allt fer á versta veg. Það út af fyrir sig þarf ekki að þýða að Boeing fari yfir um. Fyrirtækið er vellauðugt og hefur smurt hendur stjórnmálamanna vestanhafs duglega um áratugaskeið. Þess utan er þetta risastór atvinnurekandi svo að bandarísk stjórnvöld munu ábyggilega grípa inn í með björgun ef Boeing fer að sökkva of djúpt.

En það er annað sem lítið er rætt um. Boeing Max-8 vélarnar hafa síðustu misseri verið söluhæstu rellur Boeing. Þó flugfélagið framleiði fjölda mismunandi véla er engin þeirra að seljast eins og Max-8. Nú þegar ljóst að nokkur flugfélög hafa hætt við pantanir á Max-8 eða dregið mjög úr pöntunum og Boeing að sama skapi minnkað framleiðslu.

Rúið trausti

Stóra spurningin er því þessi: þegar Boeing tekst að koma fram með lausn sína og búið verður að meta flughæfni Max-8 á nýjan leik, hvernig mun flugfélögunum ganga að fá almenning um borð?

Orðstír Boeing sem fyrirtækis er stórlaskaður. Hversu margir sem vantreysta flugvélaframleiðandanum nú eru líklegir til að stíga um borð í Max-8 vél aftur þrátt fyrir loforð Boeing um bót og betrun þegar þar að kemur? Hvers vegna á fólk að taka góðar og gildar yfirlýsingar Boeing um að allt sé nú í góðu lagi og hættan fyrir bí?

Tveir af fjórum sem hér skrifa ætla ALDREI um borð í Max-8 og hinir beggja blands. Hvað um þig og þína fjölskyldu? Treystirðu þér til að fljúga með Max-8 vélum eftirleiðis?