Fyrrum eigandi Wow Air, Skúli Mogensen, rær nú öllum árum til þess að endurreisa flugfélagið frá dauðum og hefur meðal annars leitað á náðir almennings gegnum hópfjármögnun á netinu. Það er slæm hugmynd að leggja þeirri hugmynd peninga eða lið.

Móðins þykir að endurvekja Wow Air sem allra fyrst. Slæm hugmynd. Mynd Alec Wilson
Skúli Mogensen eyddi litlum sjö mánuðum í að rétta af rekstur Wow Air og það árangurslaust þegar í ljós kom að sú hugmynd að stækka og stækka án þess að grunnurinn væri reistur á öðru en sandi var eiginlega ekki að gera sig. Fyrir vikið sátu þúsundir starfsmanna uppi sem sárt enni, launalausir og jafnvel fastir í hafsauga erlendis þegar á hólm var komið plús tugþúsundir farþega sem önnur flugfélög þurftu að koma til bjargar þó flestir sæti uppi með sárt enni og tóma buddu.
Ofan á sálarkvalir þúsunda bættist bullandi fjárhagslegt tap fjölda fyrirtækja sem þjónustuðu Wow Air og líklega milljónatap ferðaþjónustuaðila á Íslandi í ofanálag. Milljarðatap líka fyrir íslenska ríkið, þig og mig, gegnum Ísavía.
Hvernig mátti gera þetta betur og heiðarlegar?
Jú, ekki þarf að líta lengra en til ferðaskrifstofunnar Gamanferða. Sú ferðaskrifstofa seldi nánast eingöngu túra gegnum Wow Air og þegar ljóst varð að kostnaður myndi margfaldast með hrapi flugfélagsins höfðu eigendur Gamanferða vit á því að leggja strax inn ferðaskrifstofuleyfi sitt og biðja viðskiptavini afsökunar. Þeir hefðu getað selt ferðir áfram um tíma og fengið einhverjar milljónir inn á bókina tímabundið en kusu að gera það ekki. Þar alvöru menn á ferð
Skúli Mog hins vegar fór aðra leið. Hann lofaði bót og betrun fram á síðasta söludag með þeim afleiðingum að hundruð þúsunda farþega Wow Air töpuðu drjúgum fjármunum og starfsfólk flugfélagsins vissi hvorki í þennan heim né annan.
Að vita betur
Herra Mogensen æðir nú áfram og safnar fjármagni héðan og þaðan með þeim formerkjum að nú viti hann betur. Hann viti upp á hár hvaða mistök leiddu til falls Wow Air og einfalt sé nú að nýta þá vitneskju til að sparsla í nýtt flugfélag og fara að græða alvöru peninga. Hann ætlar meira að segja að nota sama vörumerki ef allt fer að óskum.
Hmmm. Það þarf ekkert að gúggla Wow Air mikið til að fá mjög neikvæða mynd af fyrirtækinu. Þvert á móti. Gjaldþrot Wow Air var umfjöllunarefni hjá velflestum fjölmiðlum heims. Wow Air er líka fyrirferðamikið á samfélagsmiðlum þar sem Jón, Gunna, John og Linda kunna farir sínar ekki mjög sléttar enn þann dag í dag.
Ofan á þetta bætist að Mogensen hefur áður farið lóðbeint í þrot með spennandi fyrirtæki eins og lesa má um hjá Stundinni. Þrátt fyrir að kauði hafi fengið fyrirtæki fyrir slikk gegnum vin sinn í Landsbankanum á sínum tíma plús tugmilljóna króna gjöf frá skattborgurum gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands, fór græðgin með hann þráðbeint í gröfina með Wow Air.
En við þurfum annað íslenskt flugfélag…
Sumir segja algjört lágmark að til séu tvö íslensk flugfélög. Það kemur í veg fyrir ömurlega einokun og ætti að auka ferðamannastraum til landsins.
Rétt er það að Icelandair nýtur þess meðal landans að vera eitt um hituna. Engin spurning að yfirmenn Icelandair hugsa sér gott til glóðar. Nema hvað að landinn hefur nú um tæplega 30 flugfélög að velja til og frá landinu þó Wow Air sé horfið yfir móðuna miklu. Mörg þeirra að bjóða betur en Icelandair.
Og hver er að segja að Wow Air verði íslenskt flugfélag að nýju ef endurreisnin tekst? Það er jú ekki mjög sexí fyrir erlenda fjárfesta að punga út fyrir flugfélagi sem greiðir góð íslensk laun. Ekkert liggur fyrir um að nýtt endurreist flugfélag herra Mogensen verði íslenskt.
Svo má ekki gleyma einstakri íslenskri náttúru. Hún er víða troðin svo niður af ferðalöngum að loka verður heilu svæðunum reglulega og vegakerfið hefur verið í gjörgæslu um árabil. Fall flugfélags er plús fyrir náttúruna okkar. Færri komur til landsins merkir að náttúran nýtur vafans. Hún græðir líka á því að flytja þarf inn mun minna af kínverskum lundabrúðum til að selja í miðbæ Reykjavíkur og Akureyrar.
Allir græða ef Skúli Mogensen lætur staðar numið hér og nú.







