Tíðindi

Sólarkapphlaup Plúsferða

  14/03/2009apríl 9th, 2014No Comments

Á mánudaginn kemur hefst svokallað Sólarkapphlaup Plúsferða en þar býður ferðaskrifstofan upp á allnokkrar ferðir á talsvert betri kjörum en gengur og gerist.

Er það vel enda of lítið um tilboð hjá íslensku ferðaskrifstofunum en augljóst er að fá sæti eru í boði á umræddum kjörum þvi ellegar væri vart um „kapphlaup“ að ræða.

Hefst húllumhæið árla klukkan sex á mánudagsmorgun. Munið að stilla klukkuna.

Tilboðin:

Frá kr. 9.900

Flugsæti til London, Kaupmannahafnar, Billund, Álaborgar, Gautaborgar og Stokkhólms (aðra leið, með sköttum).

Frá kr. 14.950

Flugsæti til Alicante (aðra leið, með sköttum).

Frá kr. 49.900

Til Tyrklands, Marmaris, m.v. 2 fullorðna og 2 börn á Fidan í 5 nætur, brottför 29. maí.

Frá kr. 62.000

Til Tyrklands, Marmaris, m.v. 2 fullorðna á Fidan í 5 nætur, brottför 29. maí.

Frá kr. 59.900

Til Rimini m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð á Angeli, brottfarir 1. og 29. júní í viku.

Frá kr. 71.990

Til Rimini m.v. 2 fullorðna í íbúð á Angeli, brottfarir 1. og 29. júní í viku.

Frá kr. 59.900

Til Kanarí m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð með 2 herbergjum á Parquemar eða Montemar, brottfarir 29. maí og 26. júní í viku.

Frá kr. 71.990

Til Kanarí m.v. 2 fullorðna í íbúð á Angeli, brottfarir 29. maí og 26. júní í viku.

Athugið að öll verðdæmi miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu Plúsferða eða símleiðis bætist við bókunargjald, kr. 2.500 fyrir hvern farþega.

Þessi fargjöld verður hægt að bóka frá kl. 06.00 að morgni mánudagsins 16. mars2009. Takmarkað framboð miða í hverju tilboði – fyrstur kemur fyrstur fær!