Tíðindi

Hræðileg þjónusta Úrval-Útsýn

  15/03/2009apríl 9th, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn auglýsir nú 15. mars á Rás 1 og Rás 2 að allar þeirra ferðir til Tenerife í mars séu uppseldar og aðeins séu örfá sæti laus í apríl.

Fyrir utan þá staðreynd að slíkir viðskiptahættir séu undarlegir og gamaldags því velflest önnur fyrirtæki myndu gera sér far um að bæta við ef eitthvað seldist upp. Verslunarfyrirtækið Krónan myndi til dæmis aldrei auglýsa að epli væru uppseld út næstu mánuði heldur verða sér úti um fleiri epli. Þetta lærist í viðskiptum 101.

Verra er samt að á heimasíðu ÚÚ er ekki minnst á þetta einu orði. Sá sem ekki heyrir umræddar auglýsingar má eyða talsverðum tíma á vef fyrirtækisins áður en fullvissa verður um að ferðir til Tenerife eru uppseldar í mars og apríl.