Tíðindi

Smáa letrið hjá GB Ferðum

  06/05/2011nóvember 27th, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan GB Ferðir auglýsir nú á heimasíðu sinni tvö gisti- og golftilboð í Orlandó Flórída í sumar að því er virðist á mjög frambærilegum verðum. Ferðaskrifstofan sýnir þó ekki þá lágmarkskurteisi að birta verð í íslenskum gjaldmiðli heldur auglýsir verð sín í dollurum.

Og vissulega hljómar gisting á 69 dollara og golfhringur á 57 dollara ágætlega því dollarinn hefur veikst nokkuð að undanförnu. 69 dollararnir eru því 7.900 krónur og 57 dollarar eru 6.600 krónur miðað við gengi dagsins. Ekki amalegt það.

En heldur kárnar gamanið við lestur smáa letursins því 69 dollara tilboð GB Ferða á við um kostnað hvers einstaklings ferðist tólf saman og gisti í einu og sama húsinu.

Auðvitað er ekki alveg fráleitt að sex pör, hjón eða stórfjölskylda hafi áhuga að deila sex herbergjum undir sama þaki í Orlando en langsótt er það og töluvert dýrara reyndar en að svo stór hópur leigi sér villu á eigin spýtur.

Golfhringur á þeim þremur völlum sem í  boði eru á Ginn Reunion Resort á 6.600 er allt í lagi verð enda vellirnir allar fyrsta flokks. Þó kemur ekki fram í tilboði GB Ferða hvort sá taxti er í boði fyrir stakan kylfing eða hvort aftur er miðað við að tólf ferðist saman.

Tilboð GB Ferða hér.