Farþegum Norrænu næstu dægrin fyrirgefst að halda að andinn um borð sé eitthvað undarlegur því milli færeyskra og íslenskra starfsmanna ferjunnar ríkir nú mikil ógleði.
Stafar þetta af deilum um launakjör en sú merkilega staða er upp komin að íslenskir starfsmenn eru reiðubúnir að vinna um borð fyrir töluvert lægri laun en þeir færeysku. Munar þar heilum 30 prósentum en slíkt eðlilega getur haft slæm áhrif á starfsöryggi færeyskra starfsmanna.
Er því andinn um borð minna en yndislegur en ekki hefur frést af sérstökum afsláttarkjörum vegna þessa.






