Af þeim er þátt tóku í síðustu skoðanakönnun Fararheill.is segjast flestir, 28 prósent, eyða á milli 200 og 400 þúsund krónum í ferðalög árlega. Litlu færri, 25 prósent, segja kostnað við ferðalög árlega nær því að vera milli 400 og 800 þúsund krónum.
Færa reyndar flestir þeir 186 einstaklingar sem þátt tóku til bókar að þeir eyði alls engu í ferðalög. Best sé að vera heima og fara ekkert en 32 prósent svarenda taka þann pól í hæðina.
Þá kemur nokkuð á óvart að 12 prósent telja vel sloppið að eyða undir einni milljón króna í árleg ferðalög. Rúm þrjú prósent klykkja svo út með að segjast eyða öllu sem þeir eigi í ferðalög.
Má ljóst vera að miðað við svörin eru ferðalög stór kostnaðarliður hjá mörgum
Ekki er um hávísindalega könnun að ræða heldur meira til gamans en svörin gefa þó ákveðnar vísbendingar. Þakkar Fararheill öllum er þátt tóku og hvetur fólk til að taka þátt í nýjustu könnuninni.






