Bretar eru svo afspyrnu mikið leiðinlegri en þegnar annarra þjóða á ferðalögum að þeir viðurkenna það sjálfir. Að minnsta kosti er það útkoma skoðanakönnunar sem Skyscanner stóð fyrir.
Tóku Bretar toppsætið fyrir leiðindi á ferðalögum nokkuð auðveldlega og stóðu upp úr í flokkunum „nenna ekki að læra stakt orð í neinu tungumáli“ og „fullir og uppvöðslusamir.“
Eins og þetta sé ekki nógu slæmt fá Bretarnir hörmulega einkunn þegar kemur að þjórfé og nískast með slíkt út í eitt.
Það sem gefur þessum hörðu einkunnum sannleiksgildi var að stærsti hluti þátttakenda í könnuninni voru Bretar sjálfir.
Á eftir þeim þóttu Bandaríkjamenn leiðinlegir á ferðalögum. Rússar lentu í þriðja sætinu og tóku titilinn fyrir „mestu ókurteisina“ og þar á eftir komu Frakkar og Þjóðverjar.






