Þó tíu ár séu liðin síðan hryðjuverkin þann 11. september urðu í New York mætti halda að þau hafi átt sér stað í gær. Hvarvetna í borginni komast heima- og ferðamenn ekki nokkurn spöl án þess að sæta öryggisleitum og á vinsælum ferðamannastöðum geta tafir vegna þess orðið verulegar.
Þannig er til dæmis ekki óalgengt að bíða þurfi eina til tvær klukkustundir eftir að komast um borð í ferjuna að Liberty og Ellis eyjum en á þeirri fyrrnefndu stendur hin magnaða fransksmíðaða Frelsisstytta.
Ástæða þessarar biðar er að fæstir kaupa miða á netinu fyrirfram og þurfa að bíða í röð eftir miða. Það eitt getur tekið klukkustund á annatíma. Þá tekur við öryggisleit sem getur tekið hálfa klukkustund áður en komist er um borð í ferjurnar.
Ferjur ganga annars bæði frá Liberty State Park í New Jersey og frá Battery Park í Manhattan. Sökum þess hve seinlegt allt er þurfa ferðamenn að komast af stað eigi síðar en klukkan 13 sé ætlunin að heimsækja báðar eyjarnar. Að öðru kosti gefst ekki kostur á því.
Miðaverð fer eftir hversu mikið á að skoða. Vilji menn fara upp í kórónu Frelsisstyttunnar og skoða safnið kostar slíkur miði 2.400 krónur en bara túr á eynna einn og stakur kostar 1.800 krónur.
Ritstjórn getur mælt með stoppi á Ellis eyju. Þar voru örlög milljóna ráðin á sínum tíma hvort Evrópubúar kæmust inn í landið eður ei.
Allar nánari upplýsingar um tímasetningar og fleiri miðategundir hér.






