Eitthvað er farið að fara um menn hjá stóru ferðaskrifstofunum. Bæði Heimsferðir og nú Úrval Útsýn eru að slá slatta af verði Kanaríferða nú í janúar og febrúar.

Janúarsól á Tenerife eða Kanarí á lægra verði en ella.

Janúarsól á Tenerife eða Kanarí á lægra verði en ella.

Oftar er það ekki raunin enda seljast ferðir í vetrarsólina á Kanarí og Tenerife mun betur en heitar lummur hafa nokkru sinni gert almennt talað. En ekki núna.

Úrval Útsýn auglýsir „allt að“ því 23 þúsunda króna afslátt á mann í tilteknar ferðir strax eftir áramót á æði mörgum hótelum. Ágætt mál fyrir okkur og engin spurning að ferðaskrifstofan hefur alveg efni á að lækka verð á ferðum. En mikið óskaplega er þreytt að auglýsa verð miðað við tvo fullorðna og tvö börn. Það löngu orðið úrelt fjölskylduform í landinu plús að það eru ekki allir foreldrar til í að taka börn sín úr skóla í viku, tvær skömmu eftir þokkalegt jólafrí.

Heimsferðir eru líka að rúlla út rauða dreglinum til Kanaríeyjar. Undir tilboðshnappi þeirra má finna töluvert af ferðum í janúar og febrúar og þar af nokkur safarík „stökktu“ tilboð sem oftast eru á mun lægra verði en hinar.

Kannski er þetta jólagjöf fjölskyldunnar til fjölskyldunnar.