Tíðindi

Skrýtin samkeppnin til Billund

  17/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Það er afskaplega fátítt að samkeppnin í flugi til og frá landinu sé það hörð að þrjú flugfélög bjóði upp á einn og sama áfangastaðinn. Ef allt er eðlilegt þýðir slíkt fargjaldalækkun á þeirri leið og neytendur njóta góðs af því.

Þannig háttar að þrjú flugfélög fljúga til Billund í Danmörku þetta sumarið. Slíkt er nýlunda á þeirri leið en um er að ræða flugfélögin Icelandair, Iceland Express og Primera Air sem flýgur fyrir hönd ferðaskrifstofunnar Heimsferða.

Úttekt Fararheill.is sýnir að í maí og júní bjóða Heimsferðir allra best enda er sérstakt tilboð í gangi þá leiðina fyrir 400 fyrstu sætin. Fást flugmiðar fram og tilbaka þennan tíma fyrir samtals 27.800 krónur á mann hjá Heimsferðum. Lægstu verð Iceland Express, sem reyndar hefur ekki flug þangað fyrr en í júní, er 31.800 krónur meðan Icelandair býður lægst fargjald á 36.130. Eru reyndar allnokkrar ferðir Icelandair nokkuð dýrari en það.

En það sem kemur spænskast fyrir augu er að ekkert þessara þriggja flugfélaga er að bjóða ferðir á ýkja hentugum tímum sólarhringsins.

  • Heimsferðir eru þannig að bjóða sínar ferðir frá Íslandi klukkan 20:10 á kvöldin sem hefur í för með sér að ekki er lent í Danaveldi fyrr en klukkan 01:10 eftir miðnætti. Heimferðirnar eru betri því flogið er frá Billund um sex leytið síðdegis og lent á Fróni uppúr 19 að íslenskum tíma.
  • Icelandair gerir verr. Þeirra flugferðir til Billund fara ekkert héðan fyrir en laust eftir miðnættið og eru lentar í Billund um 05:00 leytið um morguninn. Til að komast heim á leið aftur þurfa farþegar Icelandair að vera mættir út á völl ekki mikið síðar en 06:30 því brottför er 08:15 á morgnana.
  • Ferðir Iceland Express fara frá Íslandi á hvað skikkanlegastum tíma eða klukkan 18 og lenda í Billund rétt fyrir 23 á kvöldin. En á móti kemur að brottfarir frá Danmörku eru rétt fyrir miðnættið og lent á Íslandi klukkustund síðar að staðartíma.

Það sem gerir tímasetningar flugfélaganna sérstaklega skrýtnar er að stór hluti fólks sem fer til Danmörku og gerir sér far um að fara til Billund er mikið til barnafólk. Ekki er heiglum hent eða þægilegt að ferðast með smáfólk eða ungmenni oft á tíðum og sýnu erfiðara eldsnemma dags eða um miðja nótt.

Þá er það að gleymast að sé Billund ekki áfangastaðurinn eiga farþegar eftir að koma sér áleiðis í Danmörku og til helstu bæja og borga, Árósa eða Kaupmannahafnar, og eiga eftir tveggja til þriggja tíma akstur eftir atvikum. Þeir sem þannig eiga frekari ferð fyrir höndum eru því að ferðast um miðja nótt.

Undarlegast af öllu er þó að þá sjaldan hægt er að tala um samkeppni í fluginu býður ekki eitt flugfélaganna flug á því sem flokkast gæti sem eðlilegur tími.