Tíðindi

Skrefi fjær fákeppni – Wow Air tekur til starfa

  23/11/2011ágúst 7th, 2018No Comments

Wow Air hefur tekið til starfa og opnað fyrir sölu á flugferðum félagsins næsta sumarið. Þrátt fyrir að stjórnarformaðurinn, Skúli Mogensen, segi að samkeppni sé ekki höfuðmarkmiðið heldur að stækka köku erlendra farþega er ljóst að neytendur hérlendis munu njóta góðs af.

Bauð flugfélagið takmarkaðan fjölda ferða sinna á tilboðsverði, 9.900 krónur, vegna opnunar söluvefsins og fær ritstjórn Fararheill ekki betur séð en þau fargjöld hafi rokið út. Það verð finnst hvergi nú fimm klukkustundum eftir opnun vefsins.

Að þeim frátöldum munu ferðir flugfélagsins kosta frá 14 þúsundum og upp tæp 37 þúsund krónur aðra leið til Zurich svo dæmi sé tekið. Flýgur félagið til tólf áfangastaða í sjö löndum en ekki er útilokað að áfangastöðunum fjölgi þegar fram líða stundir.

Áfangastaðirnir eru:

Stuttgart, London, París, Berlín, Kaupmannahöfn, Lyon, Alicante, Zurich, Köln, Basel, Varsjá og Kraká.

Heimasíða Wow Air hér.

Óska verður öllum Íslendingum til hamingju með aukna samkeppni til og frá landinu. Það þýðir lægri fargjöld og vonandi heldur Wow Air sig við að veita alvöru samkeppni. Það er jú ekki eðlilegt að við hér greiðum 30-60 prósent hærra verð fyrir skemmri flug hingað og þangað en allir aðrir í Evópu.