Morgunblaðið sér ástæðu til að fjalla nokkuð ítarlega um mikla fjölgun farþega Icelandair til Boston í október, nóvember og desember en þangað flýgur flugfélagið daglega um þessar mundir.
Fyrst og fremst er þar um að ræða erlenda ferðamenn en þó munu hátt í fimm þúsund Íslendingar heimsækja borgina þessa þrjá mánuði.
Allt er þetta gott og mjög blessað og túlka má þetta á tvo vegu. Annars vegar eru að koma jól og verðlag almennt í Boston er töluvert eðlilegra en gerist á íslenskum verslunarfákeppnismarkaði. Á hinn bóginn má segja að kannski sé kreppunni gert of hátt undir höfði og að margir landsmenn setji ekki fyrir sig að skreppa út fyrir landsteinanna sér til yndisauka og ánægju.
En hvergi kemur fram í fregn blaðsins að þessi „metárangur“ flugfélagsins á sér stað á nákvæmlega sama tíma og engin er samkeppnin á þessari flugleið.
Iceland Express hefur um tíma boðið ferðir til Boston á lægra verði en því var hætt fyrr í haust í kringum þann tíma sem Icelandair fór að merkja hjá sér metsölu á ferðum.
Þar sem engin er samkeppnin er eðlilegt að met séu sett. Það er bara einn að keppa í þessu hlaupi.








