Tíðindi

Skítbilleg Miðjarðarhafssigling sem bragð er að

  19/11/2012febrúar 26th, 2014No Comments

Nú er ráð að hafa hraðar hendur. Allavega ef þú hefur áhuga á ellefu daga lúxussiglingu um Miðjarðarhafið, Madeira og Kanaríeyjar ásamt tveggja daga dvöl í Barcelóna í desember á hinu mjög svo fáránlega góða verði 71 þúsund krónur á mann.

Þeim sem vilja eyða peningunum sínum í vitleysu er frjálst að bóka siglingar hjá innlendum ferðaskrifstofum en hinir sem vilja mikið fyrir peninginn ættu að beina sjónum sínum að tilboðum erlendis.

Breska ferðaskrifstofan Cruise Nation býður reglulega eðalferðir á eðalkjörum og næstu tvo sólarhringa er 60 prósenta afsláttur á ofangreindri ferð.

Verðið á vitaskuld við um ferðir frá Gatwick flugvelli í Bretlandi en jafnvel þó sá kostnaður bætist við er tilboðið öllu betra en allar þær siglingar sem í boði eru hjá innlendum aðilum. Reyndar er erfitt að finna flug til Spánar á 70 þúsund í desember frá Íslandi og hvað þá flug, gistingu tvær nætur í Barcelóna og níu daga lúxussiglingu í þokkabót.

Og hvar er betra að búa sig undir jólin en um borð í lúxusfleyi í sól og sæmilegum yl meðan snjór og klaki þekur landið. Annars gildir tilboðið vel fram á næsta ár en þá bætist aðeins við verðið.

Nánar hér.