Miðað við allt það flókna torf sem vildarpunktakerfi Icelandair er orðið er nánast vonlaust orðið fyrir þorra almennings að gera sér grein fyrir hvort punktatilboð flugfélagsins eru ýkja merkileg og þá hversu merkileg. Nú eru sex borgir í boði frá janúar fram í mars á sérstökum vildarpunktakjörum en smáa letrið er líka heil símaskrá.

Vildapunktatilboð þykja mörgum spennandi. En veistu í raun hversu mikið þú greiðir fyrir flug á þeim forsendum?

Vildapunktatilboð þykja mörgum spennandi. En veistu í raun hversu mikið þú greiðir fyrir flug á þeim forsendum?

Fararheill hefur aldrei skilið hugmyndina að baki punktasöfnun né heldur vinsældir slíks meðal almennings. Aldrei hefur verið sýnt fram á að neytendur njóti sérstakra kjara með slíku umfram það sem væri ef til vill raunin ef sá mikli kostnaður sem er við að halda úti slíku kerfi yrði í staðinn notaður til að lækka verð á flugfargjöldum.

Þó ferðirnar sem  í boði eru til Amsterdam, Osló, Frankfurt, Stokkhólms, Seattle og Boston séu spennandi þá minnkar spennan töluvert þar sem ferðatíminn er janúar til mars eða ískaldir mánuðir en ólíkt leiðinlegra er að versla, skoða söfn eða njóta kaffibolla á skemmtilegu kaffihúsi þegar vindur og snjór gnauðar fyrir utan.

Þá er alveg eins hægt að vera heima á klakanum nema ef vera skyldi að fólk ætlaði áfram í flug annað eða ef skíðaáhugi er ríkur hjá fólki. Í þeim tilfellum steinliggja Osló eða Seattle.

Og þá skulum við reyna við útreikninga:

Boston fæst báðar leiðir frá 37.900 vildarpunktum. Gróflega má segja að 15 þúsund vildarpunktar geri um 10 þúsund krónur og því má áætla að fargjaldið í krónum sé kringum 24 til 26 þúsund krónur. Það er skrambi gott en þá eru eftir skattar, gjöld og eldsneytisálag eins og það heitir plús bókunargjald.

Þau gjöld eru hvorki fleiri né færri en tíu talsins í heildina og við miðum við hefðbundið álag til Boston. Eldsneytiskostnaður á mann er um 30 þúsund báðar leiðir. 25 þúsund króna gjaldið er þannig strax orðið 55 þúsund. Plús gróflega reiknað tíu þúsund króna kostnaður á mann í öðrum aukagjöldum. Heildarkostnaður í krónum á mann til Boston er því 65 þúsund krónur á vildarpunktatilboðinu.*

En þá á bæði eftir að taka til þess að flugið er á glötuðum árstíma þegar annars er allrólegt í fluginu; janúar, febrúar, mars, og ekki síður á enn eftir að lesa töluvert af smáu letri sem takmarka ýmislegt sem annars væri hægt.

Og hvað skyldi svo kosta far með flugfélaginu til Boston til dæmis í byrjun apríl? Jú, þar er þegar þetta er skrifað far út og heim 3. – 8. apríl á rúmlega 61 þúsund krónur eða á betra verði og betri tíma en Icelandair býður á vildarpunktatilboðinu sínu.

Aukagjöldin

Fullorðinn/nir
Greiðsla til flugfélags
Fuel Surcharge to airline 32.800 ISK
Heildargreiðsla til flugfélags 32.800 ISK

Opinber gjöld og flugvallargjöld
Airport Service/Security Charge IS 2.680 ISK
Passenger Fee IS 700 ISK
Customs User Fee US 710 ISK
Transportation Tax – International departure US 2.150 ISK
Transportation Tax – International arrival US 2.150 ISK
APHIS User Fee US 650 ISK
Immigration User Fee US 910 ISK
Passenger Civil Aviation Security Services Fee US 330 ISK
Passenger Facility Charges US 580 ISK
Samtals önnur gjöld 10.860 ISK
43.660 ISK
x 1 fullorðinn/nir = 43.660 ISK
Heildargjöld = 43.660 ISK

Smáa letrið

*Farþegi greiðir skatta og gjöld sem ekki eru inn í Vildarpunktaverði en tæplega helmingur af eldsneytisgjaldi er nú inn í punktaverði. Skattar og gjöld sem eru fyrir utan punktaverð á Hraðtilboði eru eftirfarandi: Verð eru háð gengi og gætu hafa breyst lítillega.

Ungbarnaafsláttur er 90%
Enginn barnaafsláttur á tilboði
Ferð verður að hefjast á Íslandi
Takmarkað sætaframboð
Bóka verður báðar leiðir
Gista verður aðfaranótt sunnudags.
Flugvallarskattar og eldsneytisgjöld sem ekki eru inn í Vildarpunktaverði greiðast af farþega
Félagamiði Icelandair American Express gildir með tilboði

Verið getur að fólki sé almennt sama. Margir eiga vildarpunkta og mörgum finnst slíkir punktar alltaf vera bónus við flugferðir hjá Icelandair. En hvað myndi nú fargjald til Boston raunverulega kosta ef ekki hefði þurft að eyða tugmilljónum króna árlega að halda uppi vildarpunktakerfinu?

Heimasíða Icelandair hér.