Tíðindi

Þessar flugstöðvar leyfa reykingar

  19/11/2012mars 23rd, 2021No Comments

Hún vekur ætíð upp nokkurn hlátur meðal þröngs hóps fólks sem vel þekkir til á Íslendinganýlendunni Torrevieja á Spáni sagan af íslensku hjónunum sem biðu svo lengi með að fara inn í fríhafnarhluta flugstöðvarinnar í Alicante að þau misstu af fluginu heim. Eina ástæða þessa? Óheimilt er að reykja inni í flugstöðinni.

Það kann að hljóma kjánalega en margt reykingafólkið getur ekki hugsað sér að bíða tímunum saman eftir flugi og geta ekki fengið sér eins og einn smók meðan beðið er. Enn verra er þegar reykingafólk þarf að millilenda á lengri leiðum og stígur út úr einni vél deyjandi eftir einum nikótínnagla en verður að gera sér að góðu víða að láta sig hafa reykingaleysi þar sem engin er aðstaðan.

Töluverðar deilur spretta ætíð upp þegar þetta mál er rætt. Andófsfólk segir það lágmark að flugstöðvar séu reyklausir staðir meðan reykingafólk berst fyrir því að mega kveikja sér í á þartilgerðum stöðum á flugvöllum. Sem nota bene eru líklega minnst spennandi staðir á jörðinni.

Á neðangreindum flugvöllum kemst reykingafólk í smókinn sinn án vandkvæða þó vissulega sé afar misjafnt hversu yndisleg þartilgerð reykherbergi eru úr garði gerð.

Listinn er birtur með fyrirvara en það breytist það nokkuð ört hvar má reykja og hvar ekki. Listinn er að sama skapi ekki tæmandi en ritstjórn Fararheill munum bæta eðra breyta listanum eftir atvikum.

Þá er og vert að hafa í huga að alls staðar er óhætt að fara út úr flugstöð eftir innritun til að fá sér smók svo lengi sem fólk sé með brottfararspjald og skilríki á sér. Ekkert vandamál er að fara oftar en einu sinni gegnum öryggisskoðun ef fólk hefur tíma til.

  • Helsinki flugvöllur, Helsinki, Finnlandi
  • Arlanda flugvöllur, Stokkhólmi, Svíþjóð
  • Glasgow flugvöllur, Glasgow, Skotlandi
  • Fuimicino flugvöllur, Róm, Ítalíu
  • Stuttgart flugvöllur, Stuttgart, Þýskalandi
  • Frankfurt flugvöllur, Frankfurt, Þýskalandi
  • Zurich flugvöllur, Zurich, Sviss
  • Dublin flugvöllur, Dublin, Írlandi
  • Vínarflugvöllur, Vín, Austurríki
  • Henri Coanda flugvöllur, Búkarest, Rúmeníu
  • Genfar flugvöllur, Genf, Sviss
  • Denver flugvöllur, Denver, Bandaríkin
  • Hong Kong flugvöllur, Hong Kong, Kína
  • Hartsfield flugvöllur, Atlanta, Bandaríkin
  • McCarran flugvöllur, Las Vegas, Bandaríkin
  • Salt Lake City flugvöllur, Salt Lake, Bandaríkin
  • Nashville flugvöllur, Nashville, Bandaríkin
  • Dulles flugvöllur, Washington D.C., Bandaríkin
  • Doha flugvöllur, Doha, Sameinuðu arabísku furstadæmin
  • Dubai flugvöllur, Dubai, Sameinuðu arabísku furstadæmin
  • Bejing flugvöllur, Bejing, Kína
  • Changi flugvöllur, Singapore, Singapore
  • Nýja-Delí flugvöllur, Nýja Delí, Indland