Hmmm! Hinn skattaskjólselskandi Andri Már Ingólfsson ekki fyrr búinn að setja stórt ferðaþjónustufyrirtæki feitt á hausinn með alvarlegum afleiðingum fyrir menn og mýs en hann stingur hausnum upp úr fjóshaugnum á nýjan leik og lofar Íslendingum súpertilboðum hingað og þangað.

Andri Már setti Primera Air og fjölda ferðaskrifstofa á hausinn fyrir fimm mínútum síðan en er mættur á svæðið að nýju og lofar fögru.

Skoðum eina af allnokkrum vinsamlegum fyrirsögnum um kauðann síðustu vikur og mánuði:

Nýja nálgun???

Sami gaur og kostaði Arionbanka þrjá milljarða króna vegna gjaldþrots Primera Air, sami gaur og skildi hundruðir starfsmanna sinna eftir á vonarvöl hér og þar í veröldinni þegar það flugfélag fór yfir um síðasta haust og sami gaur og skildi ekkert eftir í þrotabúinu nema gamlan Saab, er mættur fimm mínútum seinna og með lausn fyrir allt og alla.

Nýtt lógó en sami gamli kúkurinn í lauginni. Skjáskot

Þetta á sama tíma og fregnir berast af því að Andri Már og familía, búsett í Sviss þar sem skattar eru eitthvað ofan á brauð, eru að véla og díla um hundruð milljóna króna fasteignir á klakanum eins og ekkert hafi í skorist.

Dabbadona! Andri Már hoppar fram og hefur nú allt í einu, samkvæmt Vísi, fundið áður ókunna leið til að landinn komist erlendis á lágmarksverði. Kynna átti þau merkilegheit í janúar síðastliðnum en nú langt liðið á febrúar og ekkert að frétta.

Sem stemmir mætavel við yfirlýsingar skattskjólselskenda. Lofa öllu fögru en fátt um efndir. Og hvers vegna eiga viðskipti við fyrirtæki manns sem hefur ekki greitt íslenska skatta í ár og raðir…