Við hér gagnrýnt vildarpunktakerfi Icelandair og annarra flugfélaga oftar en einu sinni og oftar en tvisvar fyrir margvíslegar sakir. Og nú loks höfum við fengið hjálp frá vísindamönnum.

Vildarpunktar af hinu vonda og af margvíslegum ástæðum. Mynd Icelandair

Það lengi tíðkast hjá hefðbundnum flugfélögum heimsins að „verðlauna” þá sem fljúga oft og mikið með vildarpunktum eða einhvers konar aukalegri umbun umfram meðalplebbann sem vill bara sæmilegt flugsæti á sæmilegu verði.

Vildapunktakerfi vinsælt hjá þeim mörgum og þar á meðal hjá Icelandair sem einmitt hefur undanfarin misseri auglýst grimmt að loks sé hægt að kaupa flug með bæði peningum og punktum sem fólk hefur unnið sér inn. Þar eru ríkisstarfsmenn í sérstaklega góðum málum því ríkisstarfsmenn sem fljúga starfs síns vegna fá að halda vildarpunktum sínum persónulega þó erindin hafi verið greidd af skattfé. Þeir síðan skottast frítt til Kanarí eða Kína reglulega og hlæja dátt að meðalplebbunum heimavið sem láta taka sig í þurrt aftur og ítrekað.

Þetta er af sama meiði og gjafabréf. Það er að segja; vildarpunktar eins og gjafabréf fyrnast á tilteknum tíma, oft á tveimur til þremur árum, og eftir það siturðu eftir með handónýta punkta eða gagnslaust gjafabréf og getur bara grátið í koddann. Þú þarft að fljúga eitthvað áður en punktarnir fyrnast.

Þar liggur hundur grafinn að mati vísindamanna London Imperial College sem segja að hvers kyns vildapunktaprógrömm hvetji fólk til að fljúga sífellt oftar til að njóta bestu kjara og það aftur leiði til þess að fólk fljúgi miklu meira og oftar en ella. Fyrir vikið eykst koltvísýringsmengun töluvert sem aftur leiðir til mun hraðari loftslagsbreytinga. Með öðrum orðum; vildarpunkta- og vinakerfi hvetur fólk til að fljúga meira en það myndi annars gera með tilheyrandi aukinni mengun fyrir alla á plánetunni.

Loftslagsmengun og súrnandi andrúmsloft til að mektarfólk geti flogið miklu meira en það myndi annars gera er ekki plús í kladda Icelandair. Fyrir utan að flugfargjöld Icelandair eru hærri en ella sökum þess að fullt af starfsfólki þarf til að halda utan um vildarpunktaklúbb flugfélagsins.

Hætta þessu strax takk.