Það miður mjög hve mörg erlend flugfélög sem hingað fljúga hafa lítinn sem engan áhuga að koma sér á kortið meðal Íslendinga. Czech Airlines eitt af þeim.

Það er komist beinustu leið til Prag með þessu flugfélagi alla sumarmánuðina. Mynd CZA
Þú finnur engar auglýsingar frá Czech Airlines á íslenskum vefmiðlum og reyndar finnurðu alls engar upplýsingar um flugferðir Czech Airlines til og frá landinu nema leita sérstaklega að slíku á vef þessa tékkneska flugfélags.
Czech Airlines er ríkisflugfélag Tékklands og sem slíkt þokkalega virt í flugsamfélaginu. Ekki slæmt að Tékkarnir fljúga til og frá Íslandi alla sumarmánuðina og hreint ekki verra að vel er hægt að komast fram og aftur án farangurs allt niður í 22 þúsund krónur fram og aftur þegar þetta er skrifað.
Kannski er Prag í Tékklandi ekki uppáhaldsstaðurinn þetta sumarið en þá er ágætt að líta til þess að frá Tékklandi er komist ansi víða um heimskringluna fyrir hreint ágætt verð. En það er líka kjánalegt að leiða Tékkland alfarið hjá sér. Frábært land með stórkostlega náttúru hvert sem litið er…







