Tíðindi

Skíðaferðir í júní?

  05/06/2012janúar 27th, 2014No Comments

Ritstjórn Fararheill stendur nokkuð á gati nú þann 5. júní 2012. Ástæðan sú að tvær stórar ferðaskrifstofur sjá ástæðu til að auglýsa skíðaferðir nú með litlum átta mánaða fyrirvara og það þegar stutt er í að sól verði hæst á lofti á landinu á árinu.

Þetta er sambærilegt við að auglýsa sumarferðirnar 2013 næsta september. Sem er fjarstæða enda venjan að þær ferðir eru ekki kynntar fyrr en í janúar eða febrúar ár hvert með með heljarinnar húllumhæi og litríkum bæklingum. Einhverra hluta vegna gildir annað um skíðaferðir.

Annars vegar auglýsir Vitaferðir nú skíðaferðir til þriggja áfangastaða á Ítalíu og sama gerir Úrval Útsýn.Vitaferðir bjóða sömu staði og verið hafa í boði undanfarin ár. Madonni di Campiglio, Val di Fiemme og Selva Val Gardena sem allir eru fyrirtaks staðir en í nokkurri fjarlægð frá Bologna þangað sem flogið er. Ódýrasta vikudvölin í boði til Madonnu fyrir tvo í febrúar 2013 kostar 160.670 krónur.

Sömu áfangastaðir eru í boði hjá Úrval Útsýn með þeirri tilbreytingu þó að í stað Val di Fiemme er boðið upp á skíðabæinn Canazei. Billegasta vikudvölin í Canazei miðað við tvo saman kostar 144.680 krónur.

Heimasíða Úrval Útsýn hér. Heimasíða Vita hér.