Efasemdarmenn um hnattræna hlýnun ættu að bóka far þetta sumarið til bæjarins Narsarsuaqá Grænlandi. Á fimmtudaginn var fyrir viku mældist þar hæsti hiti nokkru sinni síðan mælingar hófust eða sami hiti og mældist á sama tíma í Lissabon í Portúgal; 24,9 stig.

Kyrrlátt kvöld við fjörðinn og funheitt líka. Tæplega 25 stiga hiti mældist í Narsarsuaq fyrir viku. Mynd jtstewart
Sé þetta það sem koma skal hjá nágrönnum okkar á Grænlandi er vart þörf að halda alla leið til Miðjarðarhafsins til að sóla sig í drasl. Mun meiri brúnku er hægt að fá á skjannahvítum jöklum Grænlands á fimm mínútum en hefðbundnum sólarströndum sé það takmarkið.
En að gamni slepptu eru 24,9 gráður í Narsarsuaq massahiti miðað við að meðalhitinn í bænum í maí er aðeins 5,2 gráður alla jafna og tíðindi þykir fari hiti yfir fimmtán gráður yfir hásumarið.
En reyndar er ekkert billegra að fljúga til þessa nágrannabæjar okkar en alla leið til Spánar og reyndar nokkuð dýrara eins og Fararheill hefur áður greint frá. Detti fólk inn á tilboð flugfélaganna má fá flug til Alicante kringum 30 til 35 þúsund þegar best lætur. Narsarsuaq aftur á móti fæst ekki ódýrar með Flugfélagi Íslands á þessum tímapunkti en rúmlega hundrað þúsund krónur.






