Heimsborgirnar París og Berlín eru nú á tilboðsverði með Wow Air til miðnættis. Fæst önnur leiðin til hvorrar um sig á 13.900 krónur.
Ferðaþyrstir Íslendingar halda áfram að fá glaðning frá flugfélögunum. Nýlokið er fínum tilboðum Icelandair og ágæt tilboð eru þessa stundina í Heita potti Iceland Express.
Wow lætur sitt ekki eftir liggja og býður París og Berlín í júní á 13.900. Athugun Fararheill leiðir í ljós að hægt er að finna sama verð til baka frá báðum borgum og þannig komist út og heim aftur fyrir 27.800 krónur alls.
Töluverða ákveðni þarf til að manni leiðist í París enda tonn að gera og skoða. Meðal annars stíga á stokk í borginni þennan mánuðinn tónlistarmenn á borð við Jay-Z og Kanye West, Red Hot Chilli Peppers og Lenny Kravitz auk þess sem þar fer fram alþjóðlega Hip hop hátíðin The Roots.
Í Berlín þarf fólk einnig að beita sig hörðu til að leiðast. Hið klisjukennda „saga við hvert fótmál“ á við um Berlín. Þungarokksaðdáendur gætu líka gert vitlausari hluti en kíkja á tónleika hjá Mötley Crue og Slash sem fram fara 12. júní.
Heimasíða Wow Air hér.







