Icelandair býður nú flug til fimm borga á tilboðsverði til hádegis á morgun með þeim formerkjum að fljúga þarf síðla sumars, í haust og vetur. Eru það London, Bergen, Stavanger, Halifax og nýjasti áfangastaðurinn Denver.

Í fyrsta sinn auglýsir Icelandair tilboðsverð til Denver og það seint á árinu og tækifæri til að rúlla sér á skíði í eðalbrekkum Klettafjalla.
Farið aðra leiðina til evrópsku borganna fæst út á 14.900 krónur með sköttum og gjöldum á almennu farrými. Tíu þúsund krónum meira þarf að punga út aðra leiðina til Halifax í Kanada og ódýrast út og heim aftur á 52.200 krónur. Fljúga verður í september eða október.
Dýrast er að fara til Denver enda lengst að fara. Býðst önnur leiðin þangað á 36.900 krónur til morguns og báðar leiðirnar á 68.500 krónur. Denver er þó aðeins í boði á þessum prís milli 1. október og 15. desember. Það er þó hægt að upplifa netta jólastemmningu á þeim tíma.
Heimasíða Icelandair hér.






