Tíðindi

Skíðaferðir ekki undir hálfri milljón

  12/11/2009desember 19th, 2013No Comments

Skíðavertíðin er hafin samkvæmt íslensku ferðaskrifunum sem nú auglýsa skíðaferðir sínar þennan veturinn grimmt. Samkvæmt verðkönnun Fararheill.is er áberandi ódýrast að ferðast til Madonna di Campiglio á Ítalíu með Úrval Útsýn en jafnvel sú ferð rífur hálfa milljón króna af bankareikningnum.

Bláfjöllin eiga engan sjéns í ítölsku Alpana. Mynd ComplicazioneCoseSemplici.

Bláfjöllin eiga engan sjéns í ítölsku Alpana. Mynd ComplicazioneCoseSemplici.

GB ferðir bjóða skíðaferðir til Aspen nú eins og áður en Aspen er eitt besta skíðasvæði Bandaríkjanna og skíða menn að því sem vísu þar að snjór sé ávallt nægur. Verra er að svæðið er dýrt sem sést einna best á því að ódýrustu skíðapassarnir sem GB ferðir geta boðið kosta 68 þúsund krónur í janúar. Gilda þeir í níu daga. Gerir það 7500 krónur fyrir hvern stakan dag. Til samanburðar kostar dagpassi í Bláfjöllin 2000 krónur en auðvitað er ólíku saman að jafna.

Fjórar 11 nátta ferðir eru í boði frá ferðaskrifstofunni sem allar eru verðlagðar á 350 þúsund krónur fyrir manninn. Lágmarksverð með ódýrasta skíðapassanum er því 437 þúsund krónur á mann eða 874 þúsund samtals fyrir hjón eða par. Nánar hér.

Úrval Útsýn býður skíðaferðir til þriggja áfangastaða. Davos í Sviss, Madonna di Campiglio og Selva Val Gardena á Ítalíu. Allt eru þetta fyrirtaks skíðastaðir í heillandi umhverfi en Sviss þó sýnu dýrari áfangastaður en Ítalía.

Fjórtán daga ferð í febrúar til Davos kostar ódýrast 386 þúsund á manninn. Algengt verð á skíðapassa einn dag á því svæði er kringum 12 þúsund krónur. Níu daga passa er hægt að fá frá 73 þúsundum. Heildarverð per hvern farþega er því 459 þúsund krónur miðað við þessar forsendur. Samtals 918 þúsund fyrir hjón eða par.

Til Madonna di Campiglio er hægt að komast í fjórtán daga um mánaðarmót janúar og febrúar fyrir 212 þúsund krónur per mann. Dagpassi á þeim slóðum fæst vart undir sjö þúsundum og 9 skíðadagar þar bæta því minnst 45 þúsundum við með magnafslætti. Ferðin þannig komin í 257 þúsund fyrir mann. 514 þúsund fyrir hjón eða par.

Ferð á sama tíma til Selva Val Gardena í fjórtán daga kostar ódýrast 386 þúsund á mann. Ódýrustu dagpassar í 9 daga þar eru kringum 52 þúsund krónur. Ferðin á mann miðað við þær forsendur kostar þá 438 þúsund eða 876 þúsund fyrir hjón eða par.

Heimsferðir eru þegar þetta er skrifað ekki með neinar skíðaferðir til sölu.