Lágfargjaldaflugfélagið Ryanair býður nú eina milljón flugsæta á sérstöku tilboðsverði næstu þrjá daga. Er hægt að fljúga til fjölmargra áfangastaða félagsins á fimm pund, heilar þúsund krónur íslenskar eða nákvæmlega 1.021 krónu frá London.
Hængur er þó á eins og ávallt í slíkum tilboðum. Fljúga verður á tímabilinu desember til janúar. Að auki er félagið frægt fyrir að taka gjald fyrir allt og íhugar að taka gjald fyrir að fara á klósettið í vélum þess.
Heimasíða Ryanair hér.






