Víst má deila um allt milli himins og jarðar. En fólk þarf að vera duglega heilaskert til að gera sér ekki grein fyrir að allt er að fara á versta veg og þarf ekki einu sinni loftslagsbreytingar til. Hver einasta lífvera á plánetunni er nú kjaftfull af viðbjóðslegum plastögnum sem við hendum frá okkur í tonnavís daglega.

Eitt einasta skipafélag heims notar ALLS EKKERT einnota plast í starfseminni. Mynd Lindblad
Flugskömm hefur komist nokkuð í tísku síðustu misserin. Það er að segja að fólk sem flýgur mikið finni hjá sér skömm fyrir sökum þess að flugvélar menga heil ósköp á flugi sínu.
Minna fer fyrir siglingaskömm sem er auðvitað sami hlutur fyrir siglingar um heimsins fallegu höf. Sem má furðu sæta því skemmtiferðaskip menga töluvert meira en rellur á flugi. Margfalt meira.
Mengun af svartolíunotkun og það jafnt á ferð sem við bryggju er lítt til eftirbreytni. En kannski enn verra vandamál hjá skemmtiferðaskipafélögum er það magn einnota plasts sem fyrirtækin nota dags daglega. Nú liggur fyrir að skipafélagið Carnival notar á ársgrundvelli hvorki meira né minna en 294 milljónir einnota plasts í skipum sínum. Þar af 50 milljónir einnota vatnsflaskna. Stór hluti þess fýkur um hitt og þetta þilfarið áður en það endar úti í sjó þar sem smádýr hafsins gleypa það, þau svo étin af stærri sjávardýrum sem svo aftur eru étin af enn stærri dýrum. Svo koll af kolli áður en við fáum okkar þorskhnakka í matinn. Þorskhnakka sem er stútfullur af plastögnum og viðbjóð.
En viti menn! Það er raunverulega til eitt einasta skemmtiferðaskipafélag sem hefur þegar losað sig við ALLT einnota plast. Það er skipafélagið Lindblad Expeditions. Það fyrirtækið gat sér svo gott orð strax í upphafi að National Geographic gerðist mjög fljótlega samstarfsaðili og í þeim ágætu blöðum eru ferðir Lindblad auglýstar nokkuð linnulítið.
Og það góðu heilli. Víst eru siglingar Lindblad aðeins dýrari en Disney-pakki þessara hefðbundnu skemmtiferðaskipa en á móti kemur eru áfangastaðirnir almennt merkilegri og hjá Lindblad er fólki ekki alveg drullusama um allt nema hagnað á bankabókinni.
Mjög til eftirbreytni svona ef þig langar til að ferðast og njóta án þess að menga allt til helvítis. Ferðir Lindblad hér.







