Ein er sú borg heimsins sem hefur kannski meiri kröfu en aðrar að vera kölluð borg ástarinnar: Veróna á Ítalíu.

Þær eru fleiri rómantískar borgirnar en París. Veróna er ein þeirra og þar er ástinni fagnað sérstaklega dagana 11. til 14. febrúar ár hvert. Mynd photoverulam
Einhver ástæða er fyrir að Vilhjálmur nokkur Shakespeare lét heimsfrægt leikrit sitt um hið ástfangna par Rómeó og Júlíu gerast hér og sú ákvörðun hans hefur skapað borginni feitar tekjur síðustu árin og áratugina.
Þar eru starfandi hvorki fleiri né færri en rúmlega 70 fyrirtæki sem hafa það eitt í boði að leiða ferðafólk í allan sannleika um ástir Rómeó og Júlíu og ekki síður staði í borginni, eins og hinar frægu svalir, sem við sögu koma.
Borgaryfirvöld leggja sitt á vogarskálarnar og nú er árlega haldin fjögurra daga ástarhátíð í borginni í febrúar hvert ár sem gengur undir nafninu Ástfangin Veróna, eða Verona nel Cuore á frummálinu.
Eðli málsins samkvæmt gengur hún út á ástina í öllu sínu veldi. Skrúðgöngur farnar þar sem þessi merkilega tilfinning ástin er í heiðri höfð. Sérstakar listauppákomur sem tengjast ástinni í gangi og verslanir og veitingastaðir skreyta á sinn rómantískasta máta. Það er því vel hægt að njóta samfunda í Veróna án þess að leggjast sérstaklega eftir leiðsögumönnum sem allt vita um Rómeó og Júlíu.
Þá er óhætt að dvelja hér lengur en nokkra daga því alls staðar á Ítalíu hefst Karnivalið vikuna á eftir Valentínusardeginum og því óvitlaust að halda til í Veróna borginni eins og rúma viku í febrúar og ná báðum viðburðum.




