Næst þegar þú tekur bílaleigubíl í Bandaríkjunum gættu þess að fylla tankinn áður en þú skilar bílnum aftur. Þóknun sem stærri bílaleigur taka fyrir að fylla tankana getur skipt tugum þúsunda.

Hjá Hertz er háum fjárhæðum smurt ofan á bílaleiguverð sé bíl skilað án þess að tankurinn sé fylltur. Mynd dhub limited

Hjá Hertz er háum fjárhæðum smurt ofan á bílaleiguverð sé bíl skilað án þess að tankurinn sé fylltur. Mynd dhub limited

Það er ekkert nýtt að tekið sé sérstakt gjald skili fólk bílaleigubílum án þess að fylla tankinn og reyndar ekki óeðlilegt að slíkt gjald sé tekið. Bíllinn er jú leigður út fullur af eldsneyti og skila ber vöru í sama ásigkomulagi og þegar hún er keypt eða leigð.

En í Evrópu og þar með talið á Íslandi er gjald þetta yfirleitt ekkert til að hafa miklar áhyggjur af. Stundum láta bílaleigurnar nægja að dæla eigin eldsneyti hvers lítraverð er þá nokkrum krónum hærra en almennt gerist og það látið nægja. Stundum er sérstök þóknun en hún ekkert til að fara á límingum yfir.

Öðru máli gegnir víða vestanhafs. Þar er lagt töluvert meira á en nokkrar krónur. Hertz er bílaleiga verst í þessu tilfelli samkvæmt úttekt sem dagblaðið USA Today framkvæmdi fyrir tveimur árum. Þar verður fólk að gera sér að góðu að greiða tæplega 240 prósenta yfirverð fyrir hvern einasta lítra sem upp á vantar þegar bifreið er skilað. Sú upphæð hleypur upp í tugi þúsunda ef lítið er eftir á tanknum. Hæsta álagning þeirra fyrir þetta reyndist einmitt vera á flugvöllum landsins.

Því ráð að láta sig hafa að fylla tankinn sjálf áður en bílnum er skilað. Það sparar mikil aukaleg útgjöld.