Sé mikilfenglegt og fokdýrt Óperuhús Oslóar ekki nógu mikið fyrir augað þarf ekki að bíða lengi áður en við hlið þess rís ekki mikið síðri bygging. Einn góðan veðurdag árið 2019 á að ljúka smíði framúrstefnulegs húsnæðis við hlið Óperunnar sem hýsa á Munch safnið í framtíðinni.

Munch skal fá hús sem hann verðskuldar árið 2018.
Líkt og gerðist með umdeilt Óperuhúsið sem kostaði margfalt meira en upphaflega var áætlað óttast margir það sama varðandi nýja Munch safnið. Ekki hefur enn verið tekin ein einasta skóflustunga en kostnaður er kominn í 3,7 milljarða íslenskra króna.
Gamla Munch safnið þekkja eflaust margir sem sótt hafa Osló heim. Það er fyrir alllöngu orðið allt of lítið og þykir ekki sæma þessum frægasta málara Noregs auk þess sem það er ekki staðsett í miðborginni sem þykir galli.
Var reyndar tæpt á því fyrr að nýtt safn yrði byggt. Borgaryfirvöld beggja blands með framkvæmdina sem kosta mun ótalda milljarða þegar upp verður staðið. Framkvæmdir eru þó loks hafnar og varla hætt við úr þessu.
Eins og myndin gefur til kynna verður Munch safnið merkileg bygging eins og Óperuhúsið sjálft. Mun því hafnarsvæði Oslóar áfram taka töluverðum breytingum frá því sem nú er.







