Stundum fara hlutir út í argandi öfgar og það virðist gerast hratt í flugbransanum vestanhafs. Sum þarlend flugfélög eru farin að taka aukagjald fyrir allan andskotann í orðsins fyllstu.

Hjá stöku flugfélögum ná aukagjöld yfir svo margt að enginn barnaleikur getur verið að sitja saman nema greiða fyrir það sérstaklega

Hjá stöku flugfélögum ná aukagjöld yfir svo margt að enginn barnaleikur getur verið að sitja saman nema greiða fyrir það sérstaklega

Þau láta orðið ekki nægja að heimta aukagjald fyrir sæti með betra fótaplássi heldur ganga lengra og heima sérgjald fyrir glugga- eða gangsæti. Þú færð jú útsýni og meiri frið við glugga og ert fljótari á klósettið og út úr vélinni í sæti við ganginn.

AP fréttastofan segir frá því að slík gjöld séu orðin það algeng hjá nokkrum flugfélögum að afar vandasamt geti verið að fljúga mörg saman langi fjölskyldur í fríið.

Þannig geta hópar fólks sem vitaskuld vilja sitja saman í flugferðum, lent í því að þurfa að greiða töluvert aukalega til þess eins að geta notið félagsskapar hvors annars á leiðinni.

Tvö bandarísk flugfélög sérstaklega hafa þennan háttinn á. Það eru Spirit Airlines og Allegiant en slík gjöld hafa komið til umræðu hjá stærri flugfélögum þó ekki hafi það verið framkvæmt enn sem komið er. Þá veit Fararheill ekki um evrópsk flugfélög sem krefjast slíks gjalds en varla langt í það.

Kannski er ekki skrýtið að flugfélög mörg bæti gjöldum á allt sem hægt er því tekjurnar eru góðar. USA Today greinir frá því að tekjur flugfélaga vestanhafs 2012 af aukagjöldum eingöngu hafi numið 3474 milljörðum króna. Það eru engir vasapeningar.