Síðustu sólarhringar hafa verið ferðaáhugamönnum góðir enda sértilboð verið í boði hjá flugfélögunum næsta samfleytt frá því fyrir síðustu helgi. Og ekki er allt búið enn. Wow Air kynnir sértilboð til miðnættis í kvöld til Basel í Sviss og Berlínarí Þýskalandi.
Við fyrstu sýn virðist nýtt tilboð Wow kannski ekki bæta miklu við enda hefur Iceland Express boðið síðasta sólarhringinn tilboð til þessara sömu borga á 14.900 krónur aðra leið með sköttum og gjöldum.
Nema Wow Air býður betur. Flugið til sömu borga kostar 13.900 krónur sé bókað og greitt fyrir miðnætti í kvöld eða þúsund krónum ódýrar en tilboð Iceland Express. Þúsund krónur til eða frá skipta fólk kannski litlu máli en Jóakim Aðalönd væri líklega á öðru máli. Tilboð Wow gilda þó aðeins í júnímánuði meðan tilboð Iceland Express náðu aðeins inn í júlímánuð.
Heimasíða Wow Air hér.







