Fjögur þúsund og 80 ár þangað til sólin gleypir jörðina með húð og hári og allt á þessari plánetu heyrir sögunni til. En aðeins rétt rúm 20 ár þangað til frægasta strönd Hawaii-eyja hverfur í sæ.

Waikiki strönd Honolulu er með þeim þekktustu í veröldinni þökk sé kvikmyndum og sjónvarpi. En ströndin sú á undir feitt högg að sækja.

Waikiki ströndin í Honolulu á Hawaii er án alls efa vinsælasta og frægasta strönd eyjaklasans og líkast til ein frægasta strönd Bandaríkjanna allra sé litið til fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta sem gerast á eða við þá ströndina.

En þrátt fyrir að megafíflið í Hvíta húsinu trúi ekki á hlýnun jarðar þá geta borgarstjórnarmeðlimir Honolulu ekki alveg tekið undir það. Rannsóknir benda sterklega til þess að hin fræga Waikiki-strönd verði horfin veg allrar veraldar undir sjó á næstu tuttugu árum eða svo.

Sé það rétt þá erum við líklega með þeim síðustu sem geta heimsótt þessa perlu og notið án þess að þurfa mjög langt sogrör eða kafarabúning. Ekki dapurlegt heldur að segja barnabörnum frá því að fimmtíu árum liðnum að afi og amma hafi nú dúllast duglega á fagurri strandlengju sem ekki er til lengur…