Heibabbílúlla. Við hér fengið heilar sex fyrirspurnir síðustu tólf daga frá fólki sem hyggur á túr til Dúbaí eða Abú Dhabí og er alveg lost hvað varðar vegabréfsáritanir.

Áritun til Dúbaí? Neibbs, engin þörf á því.

Síðasta skeytið til okkar var þetta hér:

Á þessari síðu hér
https://fararheill.is/afangastadir/asia/sameinudu-arabisku-furstadaemin/dubai/
Segið þið að það þurfi ekki vegabréfsáritun til Dubai. En á þessari síðu hér
https://www.stjornarradid.is
segir að það sé ekki samningur í gildi.
Hvort ætli sé rétt?

Lesendur okkar vita mætavel að það er tóm þvæla að skoða vef utanríkisráðuneytisins. Þar er í forsvari fávís sjálfstæðisplebbi sem hatar Venesúela og Filippseyjar, sleikir rass heimskra Bandaríkjamanna og hefur aðeins áhuga að gera sig gildandi opinberlega fyrir slef og rógburð.

Það vissulega rétt að samkvæmt vegabréfsvef ráðuneytisins er ENGINN SAMNINGUR í gildi við Sameinuðu arabísku furstadæmin. En það þarf enga mastersgráðu í gúggli til að finna þetta hér á opinberum vef Sameinuðu arabísku furstadæmanna:

Citizens of Iceland can obtain a visa on arrival valid for 90 days.

Visa information

No visa arrangements are required in advance.
The visa on arrival is valid for 90 days from the date of entry.
The can be consumed within 180 days from first entry.
This visa type is not extendable.
Passports should be normal and valid for more than six months.

En auðvitað er enginn af þeim vellaunuðu hjá ráðuneytinu að vinna fyrir okkur skítaplebbana. Liðið þar nóg að gera við að hrauna yfir bláfátækar þjóðir á borð við Bólivíu, Filippseyjar og Kúbu. Allt þjóðir sem ekki sleikja afturendann á Kananum hægri vinstri.

Ekki kíkja á veg utanríkisráðuneytisins þegar tékka skal áritun til hins og þessa landsins. Ekkert þar hefur verið fært til nútímans síðustu áratugina.