Svo gæti vel farið að norska lággjaldaflugfélagið Norwegian, hið eina sem enn býður Íslendingum upp á beint flug til vinsælustu áfangastaða landsmanna, fari endanlega yfir um á næstu misserum.

Hinir ýmsu einstaklingar deyja úr Covid-19 veirunni þessi dægrin. Norwegian gæti vel orðið eitt þeirra fyrirtækja sem deyja drottni í leiðinni.
Covid-19 heimsfaraldurinn sannarlega að setja mark sitt á fólk og fyrirtæki vítt og breitt um heiminn. Ekki hvað síst meðal ferðaþjónustufyrirtækja hvers kyns sem ekki girtu sig rækilega í brók í kjölfar alheimskreppunnar árið 2008.
Viti borið fólk gæti kannski haldið að þau fyrirtæki sem þær hörmungar upplifu hefðu vit á að fara varlega inn í framtíðina. Setja peninga til hliðar til mögru áranna til dæmis.
Alas, ekki svo.
Ekki svo að skilja að flugfélagið Norwegian hafi verið að breiða út vængina árið 2008 eða mikið fyrir þann tíma. Flugfélagið, sem fram að því hafði að mestu látið nægja að sinna innanlandsflugi í Noregi, keypti slatta af þotum árið 2007 og hugði á landvinninga erlendis.
Allt gekk það að mestu upp þrátt fyrir bágindi við efnahagskreppuna síðla árs 2008 og fáum árum síðar var nafn Norwegian orðið móðins um Evrópu sem fyrirtaks lággjaldaflugfélag og hið þriðja stærsta í Evrópu.
Upp, upp mín sál og allt mitt flugfélag hugsaði Bjørn Kjos, aðaleigandi og stjórnandi Norwegian, þegar uppleiðin hélt áfram allt fram til ársins 2017. Kjos synti í peningum og kvartaði lítt en svo fór græðgin aðeins að fara með kauða.
2012 hóf Norwegian að fljúga frá Evrópu til Bandaríkjanna en fram að þeim tíma var ekkert lággjaldaflugfélag að fljúga yfir Atlantshafið og þar með keppa við risaflugfélögin. Smám saman fjölgaði áfangastöðunum vestanhafs enda gekk allt þokkalega í upphafi. Nokkru síðar, 2016, fór Norwegian að bjóða flugferðir milli Evrópu og Asíu og ári síðar hóf Norwegian sölu miða frá Evrópu til Suður-Ameríku.
Með öðrum orðum henti Norwegian lággjaldamódeli sínu fyrir róða. Módeli sem gekk og gengur út á mörg, styttri flug með sem minnstum stoppum. Því þegar þú ert kominn í sex til tíu stunda flugferðir þarf áhöfnin hvíld sem merkir að rellan situr sólarhring hið minnsta á vellinum á milli flugferða.
Lokametrarnir
Flugfélagið hefur glímt við meiriháttar fjárhagsörðugleika um tæplega þriggja ára skeið. Þeir tilkomnir vegna hörmulegra ákvarðanna, dreifðu viðskipamódeli og ekki síst kaup á fjölda þota af gerðinni Boeing Max. Þær rellur verið jarðsettar nú um eins árs skeið með tilheyrandi kostnaði fyrir flugfélögin.
Áður en kórónavírusinn og nú flugbann til Bandaríkjanna komu til sögunnar var Norwegian í bökkum fjárhagslega. Þó vasar fjárfesta flugfélagsins séu djúpir er þegar búið að dæla tugmilljörðum króna í reksturinn en árangurinn takmarkaður mjög.
Að okkar mati afar líklegt, en sorglegt um leið, að norska flugfélagið fylgi hinu breska Flybe eftir á ruslahaug sögunnar fyrr en síðar. Óvitlaust að hafa það bak eyra svona ef fólk er að bóka flug með þeim fram í tímann. Greiða þá endilega fyrir forfallatryggingu sem þá er hægt að brúka ef útlitið fer að verða dekkra en það er.







