Stjórnvöld á Indlandi hafa tilkynnt að engar ferðamannaáritanir verði lengur gefnar út. Þar með er ómögulegt fyrir Jón og Gullu að skottast þangað svona næstu vikurnar hið minnsta.

Ferðin til Taj Mahal verður að bíða betri tíma. Skjáskot

Ástæðan er Covid-19 faraldurinn en það merkilega við þessa ákvörðun Indverjanna er að þar hafa aðeins örfá tilfelli komið upp enn sem komið er. Þúsundir tilfella þurfti til að Kínverjar lokuðu sínum dyrum og enn er tæknilega heimilt að heimsækja Ítalíu þó þar geysi faraldurinn hvað harðast.

Íslendingar, sem og flestir Evrópubúar, þurfa sérstaka ferðamannaáritun til Indlands og því ljóst að fyrirhugaðar ferðir þangað detta dauðar niður um ókomna tíð.