Þið búin að tryggja ykkur príma villu eða íbúð gegnum íbúðaleiguna Airbnb á erlendri grund aðeins til að komast að því að fluginu er aflýst eða landið beinlínis lokað vegna covid-faraldursins. Ólíkt mörgum hótelum virðist Airbnb ekki vera sérstaklega spennt fyrir endurgreiðslum.

Endurgreiðsla er flókið mál hjá Airbnb.
Bandaríski fréttamiðillinn Bloomberg fjallar um málið en áður höfðu nokkrir evrópskir miðlar greint frá sama vandamáli: fólk fær ekki endilega endurgreitt þó ferð falli niður jafnvel þó faraldur geysi í heiminum.
Ástæða þessa að hluta til sú að Airbnb lætur íbúðaeigendur ákveða hvort skal endurgreiða og þá hve mikið. Það eru, með öðrum orðum, leigusalar sem öllu ráða. Airbnb tekur ekki fram fyrir hendur þeirra sem vilja ekki endurgreiða krónu þó þjónustan sé ekki notuð eins og til stóð.
Enn verra að jafnvel í þeim stöku tilfellum þar sem leigusali sýnir lit og endurgreiðir tekur Airbnb samt sem áður sína bókunargreiðslu án þess að blikka auga. Engin endurgreiðsla þar.
Dapurt! Ráð kannski að halda sig við hótel svona meðan svona meðul eru brugguð hjá bandaríska risanum.







