Tíðindi

Sértilboðssæti hjá Heimsferðum

  09/04/2009maí 11th, 2014No Comments

Heimsferðir blása til herferðar og bjóða nú 300 sæti til sinna vinsælustu áfangastaða á sértilboðskjörum.

Er þar um að ræða ferðir til Bodrum í Tyrklandi og Costa del Sol, Mallorca, Salou og Benidorm á Spáni.

Óljóst er hvort þetta eru fyrstu skref íslensku ferðaskrifstofanna að bregðast við hríðfallandi eftirspurn eftir sumarleyfum erlendis en það sem af er árs hefur brottförum leiguflugvéla frá Íslandi fækkað um helming.