Icelandair hyggst bjóða upp á nýja flugleið frá og með júlí næstkomandi en þá hefjast beinar ferðir til Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna. Er það í fyrsta skipti sem flogið er beint þaðan frá Íslandi.
Ástæða þessa er sú ákvörðun skandinavíska flugfélagsins SAS að hætta flugi sínu þangað en SAS glímir við mikla fjárhagserfiðleika og hefur skorið allmargar leiðir sínar niður. Forsvarsmenn Icelandair sjá sér þar leik á borði.
Gefst Íslendingum þannig kostur að heimsækja á auðveldan hátt þessa skemmtilegu borg sem Seattle er en sem kunnugt er er sú einna þekktust fyrir kaffi, höfuðstöðvar Microsoft, Boeing og eins risavefverslunina Amazon.
Þá er engu að síður lítið gert úr mörgu öðru sem borgin býður upp á og finna má allt um Seattle hér.






