Nú er hægt að njóta karabíska hafsins á aðeins lægra verði en gengur og gerist. Skipafélagið Royal Caribbean hefur lækkað verð á allnokkrum siglingum sínum fram eftir árinu frá Flórída og par getur sparað allt að 70 þúsund krónum með því að grípa þá gæsina.
Sem dæmi um tilboðin má nú flakka um Karíbahaf í sjö nætur með hinu gígantíska Freedom of the Seas síðla hausts frá Port Canaveral skammt frá Orlandó niður í 70 þúsund krónur á mann. Það rúmlega 30 þúsund króna lægra verð en normalt og því 60 þúsund króna afsláttur á par.
Sé lítill fyrirvari ekki vandamál kostar nú aðeins 66 þúsund krónur að sigla frá Fort Lauderdale í átta nætur í lok apríl og það rétt tæplega 40 þúsund króna lægra verð per haus en almennt gerist.
Fleiri tilboð Royal Caribbean má sjá hér en hafa skal í huga að hér er ekki um flug að ræða né heldur eru skattar og gjöld innifalin í uppgefnu verði á hverri ferð. Áhugasamir þurfa því að koma sér til Flórída á eigin vegum. Á móti kemur að lægstu flugfargjöld til Orlandó fást niður í 80 þúsund eða svo og auðvelt að réttlæta þau útgjöld ef sparnaðurinn í siglingunni skjagar upp í þann kostnað.








