Það fer ekki mikið fyrir en það er nýr aðili að hefja flug milli Íslands og Þýskalands á sumri komanda og samkvæmt úttekt Fararheill er sá að bjóða verulega mikið betur en Icelandair eða Wow Air.

Þetta flugfélag er að bjóða sérdeilis lágt verð á flugi til Þýskalands í sumar.

Þetta flugfélag er að bjóða sérdeilis lágt verð á flugi til Þýskalands í sumar.

Flugfélagið Germania mun formlega hefja áætlunarflug milli Keflavíkur og Bremen annars vegar og Friedrichshafen hins vegar í júnímánuði og bjóða ferðir fram í lok ágúst. Germania er 30 ára gamalt fyrirtæki sem hefur góða sögu að baki.

Hvorug þessara þýsku borga leiðinleg á nokkurn hátt þó ekki séu þær á parinu við stuðið í Berlín eða München kannski.

En við vitum líka að fjöldi Íslendinga sækir Þýskaland ekki heim til að hanga í sömu borginni svo dögum eða vikum skipti. Þvert á móti er til dæmis töluvert stór hópur sem finnst fátt dásamlegra en leigja bíl og flakka um þetta fallega land.

Það var því með þeirra formerkjum sem við kíktum á hvernig Germania væri að standa sig í verðsamanburði við Icelandair og Wow Air. Vissulega eru fleiri flugfélög að fljúga á milli eins og Germanwings og Airberlin en þau hafa ekki almennt verið að bjóða lægri fargjöld en þessi íslensku.

Allt önnur saga með Germania. Að því gefnu að fólk þurfi bara flug til og frá Þýskalandi er hægt að gera kostakaup gegnum þýska flugfélagið eins og sést á meðfylgjandi töflu. Þar leituðum við að lægsta verði á flugi fram og aftur hjá þessum þremur flugfélögum í júní, júlí og ágúst. Áfangastaðirnir ekki þeir sömu en það skiptir ekki höfuðmáli heldur. Hér er um að ræða flug Wow Air til Berlínar, Icelandair til München og Germania til Friedrichshafen.

Fleira í töflunni ætti að vekja athygli. Ekki síst sú staðreynd að bæði í júlí og ágúst er hægt að fljúga mun ódýrara með Icelandair til München en með Wow Air til Berlínar og munar ekki litlum upphæðum heldur. Hér skal tekið fram að tösku er bætt við hjá Wow Air en slík taska er innifalin bæði hjá Germania og Icelandair.

* Úttekt gerð kl. 17:50 hjá öllum þremur aðilum samtímis. Lægsta verð í hverjum mánuði fyrir sig fram og aftur plús skattar og gjöld og ein taska í ofanálag hjá Wow Air. Hafa skal hugfast að verðbreytingar hjá flugfélögunum eru örar.

[vc_empty_space height=“12px“][vc_basic_grid post_type=“post“ max_items=“9″ item=“basicGrid_SlideFromLeft“ grid_id=“vc_gid:1457894525305-1f0d2bb8-619b-3″ taxonomies=“310″]