Æ tli bæjaryfirvöld á Akranesi einhvern daginn að gjöra góða vikulanga veislu fyrir alla bæjarbúa og það innandyra eru ekki ýkja margir staðir sem til greina koma. Reyndar engir hérlendis sem rúma þær rúmlega sex þúsund manns sem þar búa. Það gera hins vegar tvo stærstu skemmtiferðaskip veraldar sem hvort um sig rúmar 6.500 manns að meðtöldum áhafnarmeðlimum.

Allir íbúar Akraness gætu komið saman og haldið veislu um borð í stærsta skemmtiferðaskipi heims

Allir íbúar Akraness gætu komið saman og haldið veislu um borð í stærsta skemmtiferðaskipi heims

Ekki er laust við að flestir taki andköf við það eitt að lesa um skemmtiferðaskipin Oasis of the Seas og Allure of the Seas og það sem í boði er um borð í þeim fleyjum. Hvað þá þegar stigið er um borð í þessi stærstu skemmtiferðaskip veraldar og tíma eytt um borð.

Engum vafa er undirorpið að skipin tvö eru stórmerkileg mannvirki og efist einhver hverfur sá efi um leið og um borð er komið.

Þar er einfaldlega ofgnótt hvers kyns afþreyingar í boði fyrir farþega og líklega erfitt að finna betri fararmáta sé hugmyndin eingöngu að draga andann og slaka á líkama og sál. Það er jú ekki langt að fara til að sóla sig eða lesa upp á dekki skipsins. Heldur er ekki amalegt að hanga í káetu sinni sem margar hafa útsýn til hafs og þær dýrari með svalir að auki.

En sé slak og kósíheit ekki á dagskránni þarf ekki að kvarta hér heldur. Á báðum skipum eru fjölmargar sundlaugar, heitir pottar, mínigolfvellir, klifurveggir, kvikmyndasalir, líkamsrækt, tonn af börum og skemmtistöðum, veitingastaðir í tugavís og miklir og stórir salir fyrir hvers kyns sýningar og tónleika bæði innan- og utandyra.

Þá er enn ótalin ýmis sú afþreying sem fram fer meðan skipið siglir. Margir baranna bjóða lifandi tónlist úr ýmsum áttum, dýfingasýning hvert kvöld utandyra vekur ávallt athygli. Hér er töluverður fjöldi verslana og auðvitað spilavíti. Leikherbergi eru fjölmörg fyrir smáfólkið og ekki síður tækjasalir fyrir unglingana. Þá eru skipulagðir alls kyns leikir og keppnir af hálfu starfsmanna alla liðlanga daga.

Þá má ekki gleyma heilum almenningsgarði með trjám og blómum í miðju beggja skipa. Enginn lifir heldur án skautasvells og heilsulindir eru hér nokkrar með mismunandi meðferðum í boði.

Er þá enn langt í frá allt upptalið sem í boði er um borð í þessum risaskipum fyrir utan þá skemmtun sem hafa má af landgöngum á þeim stöðum sem skipin stoppa á á ferðum sínum.

Þó dýrt sé að sigla með þessum ákveðnu skipum samanborið við hefðbundnari skip er líka úr fleiri gistimöguleikum að velja. Þannig eru 37 mismunandi káetur um borð. Allt frá lúxussvítum sem aðeins er á færi vellauðugra einstaklinga til smærri en huggulegri káeta fyrir einn einasta mann.

Skipin tvö sigla í viku í senn frá Fort Lauderdale í Flórída og skiptist vikulega hvort siglt er um vesturhluta karabíska hafsins eða austurhlutans. Vesturhlutinn þýðir stopp í Labadee á Haítí, Falmouth á Jamaíka og Cozumel Mexíkó áður en siglt er aftur heim á leið. Í austurferð er stoppað í Nassau á Bahamas eyjum, Charlotte Amelie á bandarísku Jómfrúreyjum og í Philipsburg á St.Marteen eyju áður en haldið er til Fort Lauderdale á ný.

Ódýrasti vikupakkinn þegar þetta er skrifað kostar 72 þúsund krónur og miðast við gluggalausan klefa. Fyrir 78 þúsund fæst klefi með glugga og fyrir svalir með er prísinn kominn í tæp 90 þúsund krónur miðað við uppgefið verð á heimasíðu skipafélagsins..

Hljómar kannski ekkert ægilega í eyrum en auðvitað kostar sitt að komast til Fort Lauderdale og má gera ráð fyrir að flug til Orlando fram og til baka kosti kringum 80 þúsund á mann að lágmarki. Þannig er ein einasta vika komin í 160 þúsund krónur og þá á eftir að taka tillit til aukakostnaðar um borð sem getur verið umtalsverður.

Nánar á heimasíðu Royal Caribbean hér.

Systurskipin tvö eru ótrúlega smíð og vandséð að fólk skemmti sér ekki dável um borð

Systurskipin tvö eru ótrúlega smíð og vandséð að fólk skemmti sér ekki dável um borð


Fjölmargar sundlaugar og heill garður í miðju beggja skipa

Fjölmargar sundlaugar og heill garður í miðju beggja skipa


Hefðbundin káeta með glugga er ekki ýkja amaleg.

Hefðbundin káeta með glugga er ekki ýkja amaleg.

*Myndir frá Royal Caribbean