Í tölsk stjórnvöld hafa lengi reynt að berjast gegn götusölum sem finnast í hverri stórborg Ítalíu og selja þar yfirleitt alltaf falsaðan varning og á stundum stolinn varning.
Lengi vel kváðu lög á um að sekta bæri og jafnvel fangelsa þá sem seldu falsvarning á götum úti. Sem er reyndin í 99 prósent tilfella hjá götusölum.
En ítalska mafían, sem útvegar mest af þeim varningi sem götusalar selja, er skrefi á undan lögum og reglum. Þegar harðna fór í ári fengu þeir krakka og ungmenni til að selja fyrir sig. Smáfólkið vitaskuld ekki hægt að dæma né heldur fangelsa ef þau nást auk þess sem krakkarnir eru yfirleitt í hópum og gæta hvers annars.
Lögregla snéri því dæminu við árið 2016 og síðan þá hafa götusalarnir að mestu fengið að vera í friði en hins vegar er umsvifalaust farið gegn þeim sem versla við götusalana. Sem oftast nær eru erlendir ferðamenn.
Það er þeir sem nú fá sektir fyrir kaupin og þær verður að greiða á staðnum.Þær sektir að lágmarki 15 þúsund krónur miðað við gengi dagsins en geta hoppað upp í hundrað þúsund krónur.
Því vænlegra að sleppa alveg kaupum á götum úti því lögregla hefur heimild til að stöðva þig hvar sem er ef grunur leikur á að Prada taskan eða Oakley sólgleraugun hafi verið keypt úti á götu. Falsvörurnar gætu því reynst töluvert dýrkeyptar þegar upp er staðið.








