Gróflega má ætla að einn af hverjum fjórum einstaklingum undir 50 ára aldri ýki verulega um ferðalög sín á samskiptamiðlum samkvæmt nýlegum könnunum.

Aldeilis gaman hjá okkur. En er það líka raunin þegar myndatökunni lýkur?
Þú hefur kannski tekið eftir þessu. Alveg sama hvaða einstaklingar eru á ferðalagi; allir virðast þeir skemmta sér sem aldrei fyrr sé mið tekið af myndum og lýsingum á fjasbók, tístinu, snappinu eða á öðrum vinsælum vefmiðlum.
En hluti þessara montstatusa, og þetta er ekkert annað, er að hluta til lygi samkvæmt könnunum sem birtar hafa verið á tölfræðivefnum Statista.
Þær kannanir sýna að tæplega 30 prósent fólks yngra en fimmtugt ýkir mikið eða verulega um ferðir sínar og ferðalög á samfélagsmiðlum. Hlutfallið aðeins lægra hjá fólki yfir fimmtugt eða 22 prósent.
Fólk segir sem sagt allt frábært þegar ferðin er líklega bara skítsæmileg eða jafnvel verri en það. Hugmyndin auðvitað að kveikja öfund í brjóstum lesenda. Eða man einhver eftir að hafa lesið ferðastatus þar sem allt var glatað og ömurlegt eða bara lala og ekkert til að skrifa heim um? Það hendir en afar sjaldan. Við erum nefninlega öll alltaf að fela okkur fyrir öðrum og þykjast lifa meira spennandi lífi en við gerum. Samfélagsmiðlar hjálpa helling til þar.
Nei, best að henda bara út stuðmyndum frá Tene og gráta sig svo í svefn þegar enginn sér til 😉







