„Viðskiptavinum Icelandair gefst kostur á að kaupa forfallagjald sem bætir ferðakostnað ef um veikindi verður að ræða hjá farþega.“scam

Það er nú svo að viðskipti manna millum ganga aðeins upp ef traust er til staðar. Traust á því að hvor aðili um sig standi við sitt að fullu.

Þess vegna er undarlegt að lesa á fésbókarvef Icelandair skeyti frá erlendum krabbameinsveikum manni sem tvívegis hefur verið neitað um endurgreiðslu flugmiða þrátt fyrir að hafa greitt fyrir forfallatryggingu og fengið lækni sinn til að senda tvívegis bréf til flugfélagsins.

Nú vitum við ekki hvaða fólk starfar í þjónustuveri flugfélagsins en það fólk má vera æði frosið að innan til að hundsa tvívegis beiðni um endurgreiðslu flugmiða frá manni sem þjáist af hvítblæði, á líklega skammt eftir og hefur tvívegis sent vottorð frá lækni því til staðfestingar.

Komm on Icelandair. Hversu oft þurfa mál hjá þjónustuverinu að klúðrast til að þið fattið að eitthvað er ekki eins og það á að vera? Finnst ykkur gaman að fá skítkast á samfélagsmiðlum? Ekki er langt síðan þið virtuð að vettugi beiðni annars krabbameinsveiks aðila eins og lesa má um hér. Svo ekkert sé minnst á hversu algengt sé að farangur fólks fari fjandans til og viðbrögð ykkar alltaf jafn ömurleg eins og lesa má um hér.

Farið að skipta út þjónustustjóranum ykkar. Hann eða hún ekki starfi sínu vaxin.