Íslenski flugleitarvefurinn Dohop varð hlutskarpastur á World Travel Awards sem besti flugleitarvefur heims og það í annað skipti á skömmum tíma. Flott hjá þeim. Enn flottara að nú finnur Dohop flug með Icelandair á LÆGRA verði en býðst á vef flugfélagsins sjálfs.

Nú finnast dæmi þess að Dohop bjóði flug með Icelandair á lægra verði en flugfélagið býður sjálft.
Það ekki alltaf verið svo. Icelandair var um tíma í beinu vali hjá Dohop en svo breyttist það þegar Icelandair kaus að selja ekki lægstu fargjöld gegnum annan aðila. Það var sem sagt lengi vel þannig að flug með Icelandair gegnum Dohop var dýrara en að bóka beint gegnum flugfélagið.
Dohoppurum virðist hafa tekist að finna lausn á þessu. Allavega ef marka má tvær stikkprufur Fararheill.
Annars vegar um að ræða flug fram og aftur til Brussel í Belgíu 2. febrúar til 9. febrúar 2017. Á vef Icelandair kostar lægsta fargjaldið þessar leiðirnar alls 42.055 krónur samtals þegar þetta er skrifað. Leiti fólk að beinu flugi þessar sömu dagsetningar hjá Dohop kemur þetta í ljós:

Hmmm. 39.767 krónur!!! Nákvæmlega sama flug.
Enginn stórgróði en ferðist tveir saman spara tvímenningarnir rétt tæplega fimm þúsund krónur á að bóka gegnum Dohop en ekki hjá Icelandair. Það dugar fyrir nokkrum köldum á barnum.
En fátt segir af einum. Prófum aðra stikkprufu á handahófskenndum dagsetningum til Glasgow. Prófum flug fram og aftur til Glasgow í Skotlandi 13.- 18. mars næstkomandi.
Á vef Icelandair fást þessar flugferðir lægst fyrir 31.185 krónur á mann þegar þetta er skrifað. 62.370 krónur fyrir par eða vini sem ferðast saman. Sömu flugferðir sé bókað gegnum vef Dohop kosta ferðirnar parið 51.742 krónur.

Það, gott fólk, er rétt tæplega ellefu þúsund króna verðmunur á nákvæmlega sömu vöru. Sem vitaskuld dugar fyrir öllu meiru en nokkrum bjórum.
Frábært hjá Dohop að takast þetta og að sama skapi dapurt hjá Icelandair að bjóða sæti í vélum sínum á töluvert lægra verði haldi fólk annað en til flugfélagsins sjálfs.







