ÆÆÆÆÆ! Þú með barnið á ferðalagi og flugfélagið týnir þeirri tösku sem geymir mesta djásn barnsins: uppáhalds bangsann.

Lýst er eftir sætum bangsa sem hvarf í meðförum Icelandair. Mynd Twitter Jan Eken

Lýst er eftir sætum bangsa sem hvarf í meðförum Icelandair. Mynd Twitter Jan Eken

Það sýnu verra en týna dýrari hlutum því ekki er verð sett á uppáhalds bangsa barnanna okkar. Þeir eru einfaldlega ómetanlegir. Svona svipað ómissandi og hundarnir okkar.

Það er dálítið merkilegt hve illa Icelandair gengur að koma farangri farþega sinna í réttar hendur að flugi loknu. Samfélagsmiðlar flugfélagsins fullir af fólki sem er ósátt vegna farangurs sem ekki hefur skilað sér og vandamálið virðist aukast fremur en hitt.

Eðlilegir vaxtaverkir gæti einhver sagt til varnar Icelandair. Flugfélagið hefur jú breitt út vængi sína duglega til nýrra áfangastaða undanfarin ár.

Fararheill blæs á það. Þetta er flugfélag hvers þjónusta versnar dag frá degi eins og má til dæmis sjá á einkunnavef Skytrax eða á samfélagsmiðlum sem eru yfirfullir af gagnrýni á dapra eða enga þjónustu. Þetta á sama tíma og félagið mokar inn seðlum sem aldrei fyrr í sögunni og stjórarnir fitna meira en góðu hófi gegnir. Þá ber ekkert á slíkum vandamálum hjá Wow Air sem bætir við áfangastöðum hraðar en Sigmundur Davíð missir fylgi.

Nei. Milljarðafyrirtæki sem týnir töskum farþega sinna á daglegum basa er að gera eitthvað vitlaust. Segjum og skrifum.