Jahérnahér!!! Sé mið tekið af því að hjá Icelandair starfa sirka sex þúsund fræðingar í öllu mögulegu undir sólinni er stórfurðulegt árið 2019 að flugfélagið sé enn að reyna að fiffa og fífla sína eigin viðskiptavini…

Erum það bara við eða virðist nýr stjóri Icelandair ekki hafa græna hugmynd um hvað er góð þjónusta og hvað ekki? Mynd Icelandair

Hinar mismunandi deildir Icelandair eru næstum fleiri en stjörnur himingeimsins. Við hér gefum okkur að minnst ein deildin, þessi lengst úti í horni í gluggalausu rými, sjái um að viðskiptavinir flugfélagsins hafi það sem mest og best og fái sem bestar upplýsingar öllum stundum.

En alas, miðað við síðustu upplýsingar virðist það ekki alveg raunin…

„Þetta er auðvitað ekki boðleg „þjónusta“ hjá flugfélagi sem státar sig af góðri þjónustu þegar svo ber undir. „Þú flýgur betur með Icelandair“ sagði í einni auglýsingunni. Ef þetta er betur þá býð ég ekki í hvað er verr.”

Hér skrifar gamalkunnur ferðavanur blaðamaður, Sigurður Þór Salvarsson, um reynslu sína af flugi með Icelandair frá Manchester og heim fyrr í vikunni.

Ekki svo að skilja að þetta fjalli um gríðarlegar og leiðinlegar tafir vegna prumpveðurs hér heima. Prumpveðurs sem seinkaði flugi til og frá Keflavík um fleiri klukkustundir fyrr í vikunni. Neibbs. Hér er sennilega um að ræða hreina og beina lygi til handa viðskiptavinum Icelandair. Lygi í þeim tilgangi að reyna að koma í veg fyrir að bjóða eðlilega góða þjónustu, sem kostar lítillega, og halda  þannig farþegum föstum um borð á flugvelli í FIMM KLUKKUSTUNDIR án þess að fá svo mikið sem tíma dagsins hjá flugþjónum.

Örlítil hörmungarsaga af „þjónustu“ Icelandair. Ég og margir aðrir áttum flug frá Manchester til Íslands kl. 12.55 mánudaginn 15 apríl. Ballið byrjaði við innritunina þar sem okkur var tjáð að við yrðum að tékka allan handfarangur inn vegna þess að vélin væri full og mikill handfarangur. Það var ekki spurning um að þetta stæði okkur til boða, heldur var þetta skipun. Gott og vel allir komnir inn í vél ca 12.55 og ekkert að vanbúnaði að fljúga þennan stutta spöl heim, tvo tíma og korter. En ekkert gerðist og eftir hálftíma bið var fólk farið að ókyrrast aðeins. Þá tilkynnti flugstjórinn að tafir hefðu orðið við að hlaða vélina, en allt yrði klárt eftir korter í síðasta lagi.

Enn leið hálftími og þá tilkynnti flugstjórinn að tæknilegir erfiðleikar hefðu komið upp sem ætti þó ekki að taka langan tíma að laga. Skömmu síðar fengum við vatn. Enn lengdist biðin og við búin að sitja í tvo klukkutíma úti í vél. Þá tilkynnti flugstjórinn að um bilun væri að ræða og flugvirki á leiðinni til að leysa vandann. Svo var okkur náðarsamlegast boðið kaffi.

Eftir þriggja tíma bið úti í vél var okkur boðið upp á ræfilslega orkustöng, sem var það fyrsta matarkyns, ef svo mætti kalla, sem farþegar fengu. Í framhaldinu okkur tjáð að bilunin væri erfiðari viðureignar en upphaflega var talið en sömuleiðis að það þyrfti að létta vélina. Þyrfti að senda ca 25 farþega til Lundúna og þaðan heim, auk þess sem allur farangur yrði skilinn eftir í Manchester.

Eftir þetta liðu enn tveir tímar og þá höfðum við setið úti í vél í fimm klukkutíma án þess að vera boðið nokkuð bitastætt að borða. Þá var loks farið í loftið, en svör voru mjög óljós og misvísandi þegar spurt var um farangurinn. Áhöfn vélarinnar virtist ekki viss hvort hann væri með vélinni eða hvort hann hefði orðið eftir. Aukinheldur kom svo í ljós að matarbirgðir vélarinnar dugðu engan veginn og fékk obbinn af farþegunum ekkert matarkyns að borða, en var boðið upp á súkkulaði að maula.

Rétt áður en lent var í Keflavík var tilkynnt að farangurinn væri örugglega ekki með vélinni, en að tekið yrði á móti okkur með mat og drykk í flugstöðinni, sem reyndust þegar til kom vera samlokur í plasti og vatn. Svo þurftum við að fylla út í þar til gert eyðublað til að hægt yrði að koma farangrinum til okkar, þegar hann kæmi til landsins sem gæti orðið á morgun en hugsanlega síðar!

Drögum þetta saman:

A) farþegar sendir um borð án þess að flugstjóri hafi hugmynd um að farangur sé allur með eða allt sé í orden með relluna.

B) farþegar látnir bíða meðan smotterí er lagfært.

C) farþegar bíða meðan smotteríið ágerist.

D) farþegar fá hálft glas af vatni og Snickers eftir þriggja stunda bið í þægilegustu sætum veraldar.

E) Smotteríið reynist megavesen en farþegar skulu sitja límdir í níðþröngum sætum.

F) Flugstjórinn biður einhverja farþega að koma sér úr vélinni og drulla sér til London til að komast heim.

G) Eftir rúmar FIMM KLUKKUSTUNDIR hefur rellan sig loks á loft en þá án alls farangurs ALLRA FARÞEGA.

H) Farþegum lofað freistandi bakkelsi þegar lent verður í Kef. Bakkelsið samanstendur af vatnsglasi og þreyttri samloku.

Hmmm. Nú er Icelandair lítið að rokka fjárhagslega þó þeirra helsti keppinautur heyri sögunni til. Lítið að rokka fjárhagslega þó skipt hafi verið alfarið um stjórn, Lítið að rokka fjárhagslega þó fjölda íslenskra starfa hafi verið úthýst til Litháen. Og svo framvegis og svo framvegis.

Getur verið að almenn níska og ömurlegheit gagnvart farþegum sé þess valdandi að Icelandair er ekki fyrsti kostur neins heilbrigðs manns þegar fljúga á til og frá?

Víst hefði það kostað flugfélagið hundruðir þúsunda króna að senda farþega vélarinnar aftur inn í flugstöð í Manchester þegar ljóst varð að tafir yrðu alvarlegar. En hvað kostar það flugfélagið í framtíðinni að tæplega tvö hundruð farþegar eru fúlir og ósáttir? Hvaða líkur eru á að þessir tvö hundruð farþegar fljúgi með öðrum flugfélögum í framtíðinni með tilheyrandi milljónatapi fyrir Icelandair…

PS: Hver einasti farþegi um borð í þessu ákveðna flugi á skýran rétt á bótum samkvæmt flugferðalögum. Hafa skal samband við Samgöngustofu og gera kröfu. 50 þúsund kall ætti að detta inn á bankabókina á næstu mánuðum.